Núna eru flestir langt komnir með möppurnar sínar og margir farnir með þær heim. Þeir nemendur sem hafa lokið við þær og snagann sinn fá að gera verkefni að eigin vali. Núna í vetur lærði 4. bekkur að nota tifsög en það er mjög misjafnt hvernig nemendum gengur að saga með tifsöginni en það reynist [...]
Ég var að skoða myndir sem ég hef tekið í vetur og rakst þá á þessa skemmtilegu englamynd sem tekin var á aðventunni. Mér finnst svo gaman að sjá hvað þessir englar eru skemmtilegir og ólíkir. Það voru nemendur í 6.-7. bekk sem gerðu þessa engla fyrir jólin
4. – 5. bekkur í smíðaverkstæði eru núna að gera snaga og möppur. Snagana gera nemendur úr birki eða víði sem við höfum fengið hér í sveitinni. Það er alltaf gaman að sjá hvað hægt er að gera fallega hluti úr efnivið sem á að henda. Margir nemendur eru byrjaðir að gera möppur en möppurnar [...]
Það sem af er vetrar hefur 1. bekkur fengist við ýmis verkefni. Núna eru þau að gera hitaplatta en þar æfa þau sig að líma með trélími. Í plattann endurnýtum við m.a. jólatré starfsmanna Flúðaskóla sem hafa verið söguð í sneiðar. Næsta verkefni verður bókastoð en þar æfum við okkur að saga með handsög, líma [...]
Nú er liðið að annarskilum og fara þá krakkarnir úr smíðahópnum yfir í handavinnu. Það er búið að ganga vel hjá krökkunum í vetur og verið gaman að kenna þessum hóp. Takk fyrir önnina krakkar
Núna er ég að setja inn krækjur tengdar vinnu í tré. Það er oft gott að kíkja á ýmsar heimasíður tengdar því sem við erum að gera því maður fær þá oft nýjar og skemmtilegar hugmyndir. Ég á eftir að bæta þetta krækjusafn mikið og koma t.d. með krækjur tengdar málmsmíði, glervinnu og fleira.
Kveðja
Kristín Erla