Bókastoð

Þessa vikurnar hafa nemendur 1.bekkjar verið að búa til bókastoð.  Þar fá nemendur æfingu í að saga með handsög, líma og negla.  Bókastoðina skreyta nemendur síðan með steinum sem þau hafa týnt í nágrenni skólans.  Krakkarnir mála steinana að vild áður en þeir eru límdir á bókstoðina.

1. bekkur

Við byrjuðum á því í haust að fara út skoða og safna skordýrum.  Síðan teiknuðu nemendur þrjú skordýr á blað og völdu eitt af því til að útfæra í mdf.  Núna eru nemendur að saga út skordýrið með útsögunarsög.  Við notum mdf efni í skordýrið því það efni er mjög auðvelt að saga og hentar því vel [...]