Aðaláherslan í þessum hóp er þjálfun í útsögun. Í fyrsta verkefninu fengu krakkarnir að velja hvort þau gerðu hillu, krítartöflu eða lyklahengi. Næsta verkefni er spil að eigin vali og fá þau að kíkja í möppu hjá mér með ýmsum hugmyndum af spilum eða að þau komi með sínar eigin hugmyndir. Þetta er flottur hópur sem er í smíði núna og eru þau ekki mörg sem gerir það að verkum að þau þurfa lítið að bíða eftir aðstoð. ‘Eg set inn myndir fljótlega
Kveðja
Kristín Erla
