Við byrjuðum á því í haust að fara út skoða og safna skordýrum. Síðan teiknuðu nemendur þrjú skordýr á blað og völdu eitt af því til að útfæra í mdf. Núna eru nemendur að saga út skordýrið með útsögunarsög. Við notum mdf efni í skordýrið því það efni er mjög auðvelt að saga og hentar því vel þegar fyrstu skrefin í útsögun eru tekin.
Kveðja
Kristín Erla
