Trjábox

Eins og allir hópar í smíði þá vinna 6.-7. bekkur að hlut úr skóginum.  Þessi hópur gerir box úr trjábol eða öflugri grein.  Fyrir utan stofuna hjá mér er ég alltaf með tré t.d. birki, ösp, víði og fleiri trjátegundir.  Nemendur gerðu boxið sitt úr birki.  Boxin eru oft mjög ólík og eru lokin eru útfærð á mismunandi hátt eftir því sem nemandinn vill.

Rafmagnsverkefni

Nemendur 6.-7. bekkjar vinna öll rafmagnsverkefni.  Sum þeirra náðu að byrja á verkefninu í 5. bekk og eru að ljúka því á þessarri önn.  Krakkarnir velja um rafmagnsverkefni.  Þau geta t.d. gert raftening, dyrabjöllu, sparibauk eða ljós.  Hér til hliðar er mynd af rafmagnssparibauk sem stúlka í 7.bekk var að klára í síðustu viku.  Baukurinn virkar þannig að þegar settur er í hann peningur (þ.e.a.s. klink) þá vælir hann hátt.  Mér finnst þetta skemmtilegt verkefni en vona ég að hávaðinn ergi ekki marga foreldra :)

Tifsagarverkefni í 6.-7. bekk

Í 6. og 7. bekk legg ég mikla áherslu á tifsagarvinnu.  Nemendur fá frjálsar hendur með að velja tifsagarverkefni.  Vil ég bara að krakkarnir séu orðnir mjög öryggir í vinnu með sögina og geti skipt um blað í henni sjálf.  Við erum með tvær tifsagir í stofunni og er skipt um blöð í þeim á mjög ólíkan hátt.  Hér til hliðar er mynd af spegli sem stúlka í 6. bekk er að leggja lokahönd á.

Bókastoð

Þessa vikurnar hafa nemendur 1.bekkjar verið að búa til bókastoð.  Þar fá nemendur æfingu í að saga með handsög, líma og negla.  Bókastoðina skreyta nemendur síðan með steinum sem þau hafa týnt í nágrenni skólans.  Krakkarnir mála steinana að vild áður en þeir eru límdir á bókstoðina.

4.-5. bekkur

Núna eru flestir langt komnir með möppurnar sínar og margir farnir með þær heim.  Þeir nemendur sem hafa lokið við þær og snagann sinn fá að gera verkefni að eigin vali.  Núna í vetur lærði 4. bekkur að nota tifsög en það er mjög misjafnt hvernig nemendum gengur að saga með tifsöginni en það reynist mörgum erfitt að fylgja línu  en æfingin skapar meistarann og v0nandi verða allir orðnir mjög flinkir  að vinna með tifsög í 7. bekk :)

og meira um engla…

Ég var að skoða myndir sem ég hef tekið í vetur og rakst þá á þessa skemmtilegu englamynd sem tekin var á aðventunni.  Mér finnst svo gaman að sjá hvað þessir englar eru skemmtilegir og ólíkir.  Það voru nemendur í 6.-7. bekk sem gerðu þessa engla fyrir jólin

4.-5. bekkur

4. – 5. bekkur í smíðaverkstæði eru núna að gera snaga og möppur.  Snagana gera nemendur úr birki eða víði sem við höfum fengið hér í sveitinni.  Það er alltaf gaman að sjá hvað hægt er að gera fallega hluti úr efnivið sem á að henda.  Margir nemendur eru byrjaðir að gera möppur en möppurnar eru mjög ólíkar og skemmtilegar þar sem nemendur hanna sínar hliðar í möppuna.  Það verður gaman að sjá útkomuna þegar allur hópurinn er búinn.  Þess má geta að það er alltaf mikið fjör í tímum hjá þessum hóp en þessir krakkar eru alveg ótrúlega dugleg og vilja vinna af fullum krafti allan tímann :)

1. bekkur

Það sem af er vetrar hefur 1.  bekkur fengist við ýmis verkefni.  Núna eru þau að gera hitaplatta en þar æfa þau sig að líma með trélími.  Í plattann endurnýtum við m.a. jólatré starfsmanna Flúðaskóla sem hafa verið söguð í sneiðar.  Næsta verkefni verður bókastoð en þar æfum við okkur að saga með handsög, líma og negla.  Bókastoðin verður síðan skreytt með efnivið úr náttúrunni.  Í næsta tíma fáum við góða heimsókn en þá verða elstu krakkarnir í leikskólanum með okkur í tíma.

jólasveinar

Í útikennsluvikunni fóru 4.-5. bekkur út að týna steina.  Nemendur áttu síðan að búa til engla, jólasveina eða snjókarla úr steinunum.  Það er alltaf gaman að fylgjast með hvað nemendur sjá út úr steinunum en þetta verkefni þjálfar rýmisgreindina hjá þeim.

Útikennsluvika og fleira

 

Í útikennsluvikunni fóru 6.-7. bekkur út að safna efnivið í engla.  Við fórum út í miklu myrkri en snjórinn lýsti ótrúlega mikið upp.  Englagerðin gekk vel og krakkarnir mjög dugleg að vanda.