Skólasel er vistun fyrir börn í 1.-4. bekk eftir að skóla lýkur til 17.00 alla daga. Á föstudögum er lokað.

Á Skólaseli eru skráð 16 hress börn.

Stefna okkar á Skólaseli er að hafa það að leiðarljósi að leyfa börnunum að vera þau sjálf, sem mest í frjálsum leik og sköpun, hvort sem það er inni eða úti, og án mikillar pressu og áreitni frá starfsfólki. Við höfum að sjálfsögðu ramma utan um starfið til að styðjast við og ég ekki séð annað að þetta virki vel á alla.

Við ætlum að stefna á að hafa mikla útiveru í vetur og því legg ég áherslu á að þau komi með góðan og hlýjan útifatnað. Ef um leiðinlegt veður er að ræða notum við inniaðstöðuna og gerum eitthvað skemmtilegt þar.

Nokkrir punktar um hvað við erum að gera

Útivist=  Á leikvelli, göngu/vettvangsferðir og höfum að sjálfsögðu poka með í för og tínum allt rusl sem á vegi okkar verður.

Frjálsleikur= Hlutverkaleikur, spil, lestur, perlur og allt það skemmtilega sem okkur dettur í hug.

Sköpun= Myndlist, tónlist, dans, leikrit, leir ofl.