-
Ritgerð 10. bekkur
Heimildarritgerð. Skiladagur 10.desember 2009
Nauðsynlegt er að hafa a.m.k. tvær skriflegar heimildir.
Ritgerðina á að setja upp í tölvu og þið fáið aðstoð í raungreinum um heimildaöflun, uppbyggingu, notkun forrits og um meðferð heimilda og tilvísanir. Tölvutími á miðvikudögum verður helgaður þessari vinnu næstu þrjár vikurnar.
Skiladagar:
Fimmtud. 19. nóvember skila vali á viðfangsefni í tölvupósti til kennara 10% af heildareinkunn.
Fimmtud. 26. nóvember skila beinagrind(efnisyfirliti) í tölvupósti til kennara 20% af heildareinkunn.
Fimmtud. 10. desember skila útprentaðri ritgerð í plastmöppu og senda eintak í tölvupósti til kennara 70% af heildareinkunn.
Efnisval tengist erfðafræði og þróun. Nánari upplýsingar gefur kennari.
- Umfang ritgerðar er um 3 bls. texti (words 1200 – 2000)
- Leturgerð Times New Roman 12, línubil 1 ½ .
- Ritgerðin á að vera uppsett skv. fyrirmælum inn á náttúrufræðibloggsíðu.
Það sem metið verður er:
- Réttritun, málfar og framsetning.
- Afmörkun efnis.
- Uppbygging og samhengi.
- Fræðileg umfjöllun.
- Inngangur og lokaorð
- Tilvitnanir.
- Meðferð heimilda og heimildaskrá.
- Notkun forrits.
- Frágangur og útlit.
- Annað.
Munið að ritgerðin hefur 30 % vægi í annareinkunn í raungreinum.
Gangi ykkur vel.
Kveðja Gyða Björk.