Náttúrufræði Flúðaskóla 5.-10. bekkur
RSS icon Email icon
  • Ritgerðir

    Hvað er heimildaritgerð?
    •  Þegar þú ert að skrifa heimildaritgerð þarft þú fyrst að velja þér efni og afla heimilda.�
    •  Heimildir geta verið bækur, tímarit, myndbönd, viðtal, myndir, efni á Internetinu o.fl.�
    •  Því næst þarft þú að lesa og skoða þínar heimildir. ritgerð4
    •  Þú verður að gera  minnispunkta sem þú getur notað í ritgerðina.

    Hvernig er heimildaritgerð byggð upp ?
    •  Heimildaritgerð er byggð upp eins og aðrar ritgerðir.�
    •  Fyrst ert þú með inngangur næst meginmál og síðast lokaorð/niðurlag.�

    Hvað er inngangur?
    •  Inngangur er kynning á efninu sem þú ætlar að skrifa um.  Þú undirbýrð lesandann og kynnir viðfangsefnið.�
    •  Stundum segir þú frá af hverju þú ert að skrifa um ákveðið efni.  Ekki vitna í heimildir í inngangi.
    •  Hér kemur oft ein eða fleiri rannsóknarspurningar sem verður svarað í meginmáli.

    Hvað er meginmál (Kaflinn má ekki heita meginmál)
    •  Í meginmálinu fjallar þú nánar um efni ritgerðarinnar.
    •  Í innganginum taldir þú kannski upp nokkrar spurningar sem þú ætlaði að leita svara við. Þeim spurningum svarar þú ítarlega í meginmálinu.

    Hvað er lokaorð/niðurlag
    •  Í lokaorðinu dregur þú saman helstu niðurstöður ritgerðarinnar, stutt svör við spurningum úr inngangi.
    •  Þú getur sagt frá þinni skoðun um efnið sem þú valdir að skrifa um.

    Hér fyrir neðan eru slóðir sem nýtast ykkur við ritgerðarsmíð

    uppbygging ritgerðar

    Hvernig á að skrifa góða ritgerð?

    Námstækni – ritgerðir

    leiðbeiningar um heimildaskráningu