-
Hlekkur 9
Þemaverkefni
Þjórsá
Næstu vikur – fram að árshátíð og páskafríi leggjum við áherslu á Þjórsá og Þjórsárdal.
Nálgumst viðfangsefnið frá ýmsum hliðum.
5., 6. og 7. bekkur vinna ýmis verkefni og er mikil samvinna við Þjórsárskóla í gangi. Þau munu öll fara saman í ferð þriðjudaginn 2. mars upp í Þjórsárdal.
8. og 9. bekkur leggja áherslu á jarðfræði Þjórsár fyrstu vikuna, aðra viku er Þjórsá tengd líffræðinni og þriðju vikuna eðlisfræði.
10. bekkur er byrjaður í samvinnuverkefni í náttúrufræði og samfélagsfræði sem tengist Þjórsárdal/Þjórsá. Verkefnið er rannsóknarverkefni sem þau vinna í 4 manna hópum. Það koma gestir í heimsókn og svo er áætluð vettvangsferð í Þjórsárdal og inní virkjanir fimmtudaginn 11. mars. Ef vel gengur verða svo kynningar fyrir foreldra og aðra gesti í lokin.
Í þessum hlekk höfum við fengið góðan liðsmann. Kennaraneminn Hildur Lilja Guðmundsdóttir úr Eystri-Hrepp er nú á síðasta ári í kennaranámi og mun stýra kennslu hjá sumum bekkjum og verða til aðstoðar hjá öðrum. Auk þess æfir hún nú umsjón í 6. bekk.
