-
Hlekkur 2
Í þessum hlekk er áhersla á efnafræði.
Nokkur hugtök:- Efnatákn
Hvert frumefni hefur sérstakt efnatákn sem er alþjóðleg skammstöfun fyrir nafn frumefnisins. Til dæmis er efnatákn vetnis H og efnatákn súrefnis O.
- Efnahvarf
Efnahvarf er efnabreyting sem felur í sér myndun nýs eða nýrra efna. Hvarfefni breytast í myndefni.
H2(g) + ½O2(g) → H2O(l) Hvarfefni Myndefni - Efnajafna
Efnajafna er táknræn lýsing á efnahvarfi eða ástandsbreytingu
- Bræðslumark og suðumark vatns.
- Hamskipti
Breytingin úr einum í ham í annann kallast hamskipti. Storkuhamur (fast ástand, t.d. frosið vatn) – vökvahamur (fljótandi ástand, t.d. rennandi vatn) – lofthamur (loftkennt ástand, t.d. gufa).
- Leysni og mettun
Þegar sykur er látinn út í vatn leysist hann upp og til verður upplausn eða lausn. Sykur leysist vel upp í heitu vatni. Lausnir eru sagðar mettaðar þegar ekki er hægt að leysa upp meira efni í þeim við ákveðinn hita. Ef látið er meira af efni út í launsina leysist það ekki upp heldur fellur það til botns. Það kallast botnfall.
- Frumefni
Frumefni eru efni sem að ekki er hægt að skipta niður í smærri einingar með efnafræðilegum aðferðum
- Efnasamband
Er efni sem er samsett úr ákveðnum frumefnum í ákveðnum hlutföllum.
- Efnablanda
Innihalda ýmis efni, bæði efnasambönd og frumefni (t.d. Kranavatn).