Náttúrufræði
Náttúrufræði Flúðaskóla 5.-10. bekkur
-
Hlekkur 10
Næst síðasti hlekkur skólaársins hafinn. Allir mættir endurnærðir eftir langt og gott páskafrí.Við fylgjumst vel með gosfréttum í tímum - hér er hægt að skoða – vefmyndavélar frá Milu.
Næstu þrjár vikur verður eðlisfræði á dagskrá.
Við tökum ýmis hugtök fyrir tengd hita og varma – eins og vant er mismunandi áherslur eftir aldri, bekkjum, getu og áhuga.
- Varmaorka – eðlisvarmi
- Sameindir og hreyfing
- Hamskipti
- Hreyfiorka
- Hiti og varmi
- Hitamælingar
- Hitaþennsla
- Einangrun ofl.
Júl – hvað er það?
Skv. Wikipedia: Júl (enska Joule) er SI-mælieining orku og vinnu, táknuð með J. Nefnd eftir breska eðlisfræðingnum James Prescott Joule (1818-1889). Jafngildir einingunni njútonmetra (Nm), þ.e. 1 J = 1 Nm = 1 kg m2/s2.

