Náttúrufræði Flúðaskóla 5.-10. bekkur
RSS icon Email icon
  • Hlekkur 11

    Þá er síðasti hlekkur skólaársins hafinn!  Útikennsla hjá öllum bekkjum :-o

    Nú eru það lífvísindi og sitthvað líkt og ólíkt sem bekkirnir fást við:

    • 5. bekkur verður með útgáfustarfsemi. Þau vinna skógarbók – einstaklega skemmtilegt, frumlegt og náttúrulegt verkefni sem Halla Sigga stýrir í samvinnu við umsjónarkennarann Ölmu Jenný og Kristínu Erlu í smíðinni.
    • 6. bekkur heldur veðurdagbók, framkvæmir ýmsar mælingar og stundar pælingar því tengdu.
    • 7. bekkur þarf að nýta tímann næstu vikur í líffræði mannsins.  Eftir eru meðal annars verkefni tengd meltingu og þveiti.
    • 8. bekkur fer yfir skipulagsstig lífvera, efnin í þeim og ýmislegt fleira á þeim nótum.
    • 9. bekkur tekur fyrir líffræði frumvera, sveppa og hryggleysingja – skoðum líka fugla og tré.
    • 10. bekkur verður í upprifjun fyrir lokaprófið sem verður um miðjan maí.

    Allir bekkir stunda námið mikið til utandyra þessar síðustu vikur skólaársins.  Við nýtum okkur skólaskóginn og nærumhverfi skólans.  Munið að koma vel klædd í útikennsluna – skjótt skipast veður í lofti. :)