-
19. apríl – 9. bekkur
Posted on apríl 19th, 2010 No commentsKlárum varmakaflann – einangrun, þensla og hitastýring. Varmaskipti ofl.
Rifjum upp rafmagn og ræðum eldgos og eldingar.
- Hvað segja almannavarnir um eldgos?

- Hvaða áhrif hafa eldgos á dýr?………… og meiri fróðleikur um það
- RUV – aska undir Eyjafjöllum
- RUV – eldgos – gosmökkur – eldingar
- Eldingar á laugardag s.l.
- Hvernig myndast þrumur og eldingar?
- Eldingarfræðsla FSU
- Hægt er að fylgjast með eldingum kringum Ísland á eldingavefsíðu Veðurstofunnar.
- Hvernig skaða eldingar líkamann og hvernig má reyna að minnka þann skaða?
- Mikinn fróðleik um eldingar er að finna á Lightning and Atmospheric Electricity Research at the GHCC
- Hvað segja almannavarnir um eldgos?
-
15. apríl – 9. bekkur
Posted on apríl 15th, 2010 No commentsSambland af fréttum, innlögn og verkefnum í tölvuveri.
Byrjum á umræðu um eldgosið í Eyjafjallajökli skoðum aukafréttatíma RUV .
Vefmyndavél frá Hvolsvelli
Verkefni í tölvuveri í seinni hluta tímans.
- Kíkja á valin blogg nemendanna
- sjálfspróf 1
- sjálfspróf 2
-
14. apríl – 9.bekkur
Posted on apríl 14th, 2010 No commentsKíkjum á gosfréttir, stutt innlegg frá Bill Nye og bloggsíður nemenda. Að því loknu tekur við stöðvavinna.
Eftirfarandi í boði:
- Helstu orkumyndir – útskýrðu og nefndu dæmi.
- Samanburður celsíus- og kelvinkvarða – breytistuðlar
- Þáttagreining í tilraunum.
- Hugtakakort og glósur bragðbætt.
- Hvaða tilgangi gegnir einangrun?
- Framkvæmd tilraunar og skekkjugreining.
- Nýting jarðvarma.
- Lifandi vísindi – valin stutt grein og gerður úrdráttur – tengt viðfansefni dagsins.
- Varmi og hiti – hver er munurinn?
- Hvers vegna er meiri varmi í baðkari fullu af 40°C heitu vatni en í bolla sem inniheldur 70°C heitt kaffi?
- Hvernig virkar kæliskápur?
- Eðlisvarmi.
- Þensla fastra efna og daglegt líf.
- Stálull og batterí – hvers vegna er það eldfimt samband?
Sem sagt úrvalið er nóg – vinnið sjálfstætt eða tvö og tvö saman. Klárið að minnsta kosti 6 stöðvar og skilið niðurstöðum úr tímanum til kennara í lokin.
Gangi ykkur vel.
-
12. apríl – 9. bekkur
Posted on apríl 12th, 2010 No commentsFyrirlestrartími í dag. Glærur um varma. Rifjum upp og tengjum nýja þekkingu inn á hugtakakort.
Skoðuðum Hummer-hestakerru
-
Árshátíð og páskafrí.
Posted on mars 25th, 2010 No commentsÞessi síðasta vika fyrir páska hefur einkennst af undirbúningi fyrir árshátíð. Skemmtilegur tími og lifandi í skólanum.
Gleðilega árshátíð og páska.
Sjáumst hress og kát 6. apríl
-
22. mars – 9. bekkur
Posted on mars 22nd, 2010 No commentsÍ dag verður nemendum sem ekki eru á kafi í árshátíðarundirbúningi boðið að vera á kynningu hjá 10. bekk í síðustu tveim tímunum. . Kynningin verður í Kvíadal og hefst klukkan 13:50. Þar munu eldri nemendur kynna verkefni sem þau hafa verið að vinna í samþættingu náttúrufræði og samfélagsfræði. Hver hópur mun halda stutta kynningu, 10-15 mínútur, þar sem nemendur fara yfir vinnu síðustu þriggja vikna og sýna bloggsíðu sem þau hafa safnað inn á upplýsingum sem tengjast þeirra rannsóknarspurningum.



-
18. mars – 9.bekkur
Posted on mars 18th, 2010 No commentsHildur Lilja verður með könnun í dag úr eðlisfræði Þjórsár. Síðan munum við skoða nemendablogg vikunnar.
-
17. mars – 9. bekkur
Posted on mars 17th, 2010 No commentsStöðvavinna – eðlisfræði rafmagns
Hildur Lilja verður með 6 stöðvar í dag:
- Virkjanir á Íslandi.
- Daglegt líf og rafmagn
- Vinna með körfubolta
- Raforkan á heimilinu
- Umræður og ályktanir
- Framtíðin og rafmagnið
-
15. mars – 9. bekkur
Posted on mars 15th, 2010 No commentsHildur Lilja kennir 9. bekk eðlisfræði þessa viku og tengir að sjálfsögðu við Þjórsána.

Hér er hægt að nálgast fróðleik um vatnsaflsvirkjanir – upplýsingar frá FSU.
-
11. mars – 9. bekkur
Posted on mars 11th, 2010 No commentsVegna námsferðar 10. bekkjar verður kennari ekki með ykkur en þið gerið stutta könnun og farið svo í tölvuverið og bloggið og bloggið og bloggið. Gangi ykkur vel
