-
12. maí – 9. bekkur
Posted on maí 12th, 2010 No commentsVið verðum í skóginum í dag.
- Tæmum hryggleysingja – gildrurnar okkar.
- Kíkjum á innihaldið – rifjum upp frá síðasta tíma – liðdýr, skordýr, áttfætlur, fullkomin myndbreyting, ófullkomin myndbreyting, meyfæðing o.s.frv.
- Skoðum í víðsjá og greinum og flokkum.
- Tengjum við vistfræði – fæðukeðjur og fæðuvefi, frumbjarga og ófrumbjarga lífverur.
- Kveikjum í eldstæði. Helga Teits mætir með brauðdeig og fyllingar, epli og sósur. Við bökum, skerum, grillum og borðum saman.
- Segjum sögur og förum í minnisleik.
Vonandi mæta allri vel búnir – gæti skúrað í dag.
Hittumst hress og kát,
Gyða Björk.
-
10. maí – 9. bekkur
Posted on maí 10th, 2010 No comments
Dagskráin í dag:
Skoðum dagan fram að sumarfríi.
Ræðum nýjar fréttir af gosi og öðru markverðu.
Stuttur fyrirlestur um liðdýr. Skoðum frábærur glærur frá Guðfinnu í FÁ. Berum saman skordýr og áttfætlur.
Skoðum myndir þessu tengdar.
-
6. maí – 9. bekkur
Posted on maí 6th, 2010 No commentsVerðum úti í blíðunni.

Greinum barrtré – kíkjum á skordýragildrur – fræðsla og leikir.
-
5. maí – 9. bekkur
Posted on maí 5th, 2010 No comments- skoðum fréttir.
- rifjum upp hugtök og bætum nýjum við á kortið.
- kíkjum á nemendablogg.
Færum okkur út
- verkefnavinna tengd námsefninu.
- komum fyrir skordýragildrum – undirbúningur fyrir næstu viku.
- sögustund og leikur í lok tíma.
-
3. maí – 9. bekkur
Posted on maí 3rd, 2010 No commentsFyrirlestrartími í dag. Rifjum upp flokkun einfruma lífvera bæði dreifkjörnunga og heilkjörnunga. Bætum við hugtakakortið og byrjum á svepparíkinu. Glósur um sveppi.
Skoðum nýjar fréttir af gosi. …af mbl.is og vef veðurstofunnar
Nýjasta nýtt um hrossgaukinn af Journal of Experimental Biology.
Myndband af hrossagauksfjöður, blaktandi í vindi, má sjá á vef BBC.
Og svo hunangsfluga að lenda
Kíkjum á nemendablogg
-
29. apríl – 9. bekkur
Posted on apríl 29th, 2010 No commentsÚtikennsla – lífríkin fimm
-
28. apríl – 9. bekkur
Posted on apríl 28th, 2010 No commentsTilraun í dag fyrir þá sem ekki eru að tefla á Halldórsmótinu. Við skoðum frumverur í smásjá – sýnataka úr Litlu Laxá, Hellisholtalæk og rökum jarðvegi.
-
26. apríl – 9. bekkur
Posted on apríl 26th, 2010 No commentsÞessa viku verður til umfjöllunar fjölbreytilegt ríki lífvera sem kallast
frumverur
Frumverur eru eitt af ríkjunum fimm. Þær eru skilgreindar þannig að þær séu einfruma lífverur með frumukjarna.
Sumar eru ófrumbjarga og aðrar frumbjarga. Jafnvel getur sama lífveran verið stundum ófrumbjarga og stundum frumbjarga. Sumar frumverur eru sníklar og valda hýslinum skaða.
Þetta er því mjög fjölbreytilegur hópur lífvera
Fyrirlestrartími í dag þar sem verða afhentar glósur og unnin skrifleg verkefni.
-
21. apríl – 9. bekkur
Posted on apríl 21st, 2010 No commentsStutt en ekki svo létt könnun úr námsefni síðustu vikna. Kíkjum á blogg og verðum í tölvuveri hluta af tímnum. Margar flottar færslur hjá nemendum þessar vikur – gott hjá ykkur. Skoðum jarðfræðivef námsgagnstofnunar – mæli sérstaklega með þessari mynd . Þeir sem eru á eftir með heimanámið fá tíma til yfirbóta, hinir nýta tímann og skoða fréttir af eldgosinu. Þetta innlegg sem Sylvía Anna setti inn á sitt blogg er sniðugt.
Takk fyrir veturinn - gleðilegt sumar.
mín góða vina hér,
nú syng ég sumarkvæði,
því sumarið komið er,
sem unað öllu gefur svo andinn fer á kreik,
og Harpa vakið hefur sinn hörpustrengjaleik.
-
Blogg og könnun – 9. og 10. bekkur
Posted on apríl 19th, 2010 No commentsMuna eftir að blogga um gosið í Eyjafjallajökli og tengja við fróðleik um eldingar og eituráhrif öskunnar fyrir dýr.
Næsta miðvikudag stutt könnun úr námsefni hlekksins. Þið þurfið að lesa vel yfir glósur og skoða bloggsíðuna.
Áhersluatriði eru:
- Staðreynd – ráðgáta – tilgáta- tilraun- breyta-lögmál.
- Eðli orkunnar. Orka – vinna.
- Myndir orkunnar. Lögmál um varðveislu orku.
- Mælingar á orku.
- Sameindir – hreyfing þeirra – hitastig
- Varmaorka – eðlisvarmi
- Varmaflutningur (vamaleiðing, varmaburður, varmageislun)
- Hiti og varmi
- Hitaþensla
- Einangrun
- Ísland og jarðvarmi
- Gos og eldingar
- Gos og eiturefni
- Flúor – áhrif á menn og skepnur












