-
17. maí – 8. bekkur
Posted on maí 12th, 2010 No commentsÍ dag fengu nemendur verkefnablöð sem þarf að vinna og skila næsta föstudag. Á föstudag er síðasta kennslustundin á þessari önn og þá skila nemendur vinnumöppunum sínum með þessu verkefnablaði en það á að vera fremst í möppunni svo ég finni það strax. Ég mun svo setja það á réttan stað í möppuna.
-
10. maí – 8. bekkur
Posted on maí 9th, 2010 No commentsVið fórum yfir verkaskiptingu og skipulag lífvera í dag og nemendu fengu glærur. Efnið er fengið úr bókinni Einkenni lífvera, 4. kafli - bls. 73-81.
Samantekt úr efninu
4-1 verkaskipting
- í einfruma lífveru sinnir eina fruman öllum störfum sem vinna þarf til þess að hún megi halda lífi.
- í fjölfruma lífveru gegnir hver líkamshluti ákveðnu starfi. þessi verkaskipting er til hagsbóta fyrir lífveruna.

4-2 skipulag lífvera.
- fruman er lægsta skipulagsstigið. Hún er grunneining lífsins, bæði hvað snertir byggingu og starf.
- í fjölfruma lífveru vinna mismunandi gerðir frumna sérhæft störf. Hver frumugerð lifir ekki án frumna annarra gerða og lífveran í heild kemst heldur ekki af án samvinnu frumnanna.
- skipulagsstigin fimm – raðað saman frá því smæsta og einfaldasta til hins stærsta og flóknasta – eru frumur, vefir, líffæri, líffærakerfi og lífverur.
- frumur eru áþekkar að gerð og í starfi skipast saman og mynda vefi. Beinfrumur mynda til dæmis beinvef í blettatígrinum, sterkan og þéttan vef sem ræður miklu um líkamslögun hans og ber líkamann uppi.
- Plöntur eru gerðar úr vefjum á sama hátt og dýr. Laufblöð og stönglar plöntu eru til dæmis þakin sérstakri gerð vefjar sem kallast yfirhúð. Hún verndar plöntuna og kemur í veg fyrir að hún missi óþarflega mikið vatn.
- hópur ólíkra vefja vinnur saman sem eitt líffæri. Þannig er hjarta blettatígursins gert úr taugavef, vöðvavef og þekjuvef. Hver vefjagerð hefur sínu sérstaka hlutverki að gegna.
- rót, stöngull og laufblöð eru helstu líffæri plantna.
- hópur mismunandi líffæra sem vinna saman að tilteknu starfi kallast líffærakerfi.
- fjöldi líffæra í hverju líffærakerfi er mismunandi eftir tegundum lífvera. Blettatígur og önnur þróuð dýr hafa til dæmis taugakerfi sem gert er úr heila, mænu og taugum. Armslanga er hins vegar lítt þróað dýr með taugakerfi sem er bara einfalt net taugafrumna sem kvíslast um líkamann.
- lífvera er lifandi líkami í heild sinni sem annast alla þá starfsemi sem einkennir lífið. Flóknar lífverur eru úr líffærakerfum. Þær skipa æðsta skipulagsstigið.
- í flókinni lífveru gegnir hvert líffærakerfi sérstöku hlutverki en öll vinna þau saman að því að halda lífverunni lifandi.
Armslanga
-
7. maí – 8. bekkur
Posted on maí 6th, 2010 No commentsKlárum kaflann um einkenni lífvera, upprifjun, útikennsla, könnun.
- Skoða fréttir og blogg
- Greina barrtré
- Skila verkefni eftir útivinnu
- Upprifjun á efninu
- Könnun úr efninu
-
6. maí – 8. bekkur
Posted on maí 4th, 2010 No commentsÍ dag unnu nemendur verkefni úr 2. kafla bókarinnar Einkenni lífvera.
-
3. maí – 8. bekkur
Posted on maí 3rd, 2010 No commentsÍ dag héldum við áfram með 2. kafla í bókinni Einkenni lífvera. Nemendur fengu glærur úr efninu og hægt er að nálgast þær hér.
Áherslur þessa vikuna er á nauðþurftir lífvera, þ.e.
- Lífverur þarfnast orku til þess að nota við efnaskipti. Sólin er frumuppspretta þeirrar orku sem langflestar lífverur nota.
- Allar lífverur þarfnast næringar og vatns.
- Lífverur taka til sín súrefni úr andrúmslofti eða súrefni sem er uppleyst í vatni og nota það við öndun. Plöntur nota koltvíoxíð til þess að búa til fæðuefni.
- Semkeppni er barátta um fæðu, vatn og orku.
- Samvægi er hæfni lífveru til þess að halda innra umhverfi líkamans í jafnvægi þótt skilyrði umhverfis breytist.
- Jafnheit dýr halda líkamshitanum stöðugum. Líkamshiti misheitra dýra sveiflast með hita umhverfisins.
Og efni í lífverum, þ.e.
- Frumefni eru hrein efni sem er ekki hægt að brjóta niður í smærri efni með hefðbundnum, efnafræðilegum aðferðum. Efnasambönd verða til þegar tvö eða fleiri frumefni hvarfast saman og bindast efnatengjum.
- Fæst ólífræn efnasambönd innihalda kolefni. Lífræn efnasambönd innihalda kolefni ásamt öðrum frumefnum, s.s. vetni og súrefni. Mikilvægustu lífrænu efnasamböndin í lífverum eru sykrur, fituefni, prótín, ensím og kjarnsýrur.
- DKS og RKS eru tvær mikilvægar gerðir kjarnsýrna. Þær varðveita upplýsingar um gerð prótína, stýra myndun þeirra og ákvarða þar með eiginleika hverrar lífveru.
-
30. apríl – 8. bekkur.
Posted on apríl 29th, 2010 No commentsÍ dag var stöðvavinna og ýmsar stöðvar í boði.
- Nemendur teiknuðu upp og skráðu tilraun Francescos Redis en hann átti þátt í að afsanna kenningum um sjálfskviknum lífs.
- Skoðuð vatnssýni í smásjá.
- Skoðuð sýni frá gosstöðuvunum, þ.e. aska, leir og vatn úr Markarfljóti með það í huga hvort líf leyndist eða gæti leynst í sýnunum.
- Vinnubókarvinna úr efninu, glósur o.fl.
- Undibúningur undir blogg vikunnar.
- Verkefni um áreiti og viðbragð.
- Verkefni um ævilengd.
Áherslur þessa vikuna;
- Algengustu frumefni í lífverum eru kolefni, vetni, nitur og súrefni.
- efnaskipti er öll efnahvörf sem fara fram í lífveru og eru nauðsynleg til að viðhalda lífi. Næringarnám, melting, öndun og þveiti eru mikilvægir þættir efnaskipta og eiga sér stað í öllum lífverum.
- Æviskeið er sá tími sem hver lífvera lifir.
- Lífverur bregðast við áreiti, sem er breyting í umhverfi þeirra, með því að sýna eitthvað eitthvert viðbragð.
- Æxlun er ferli þar sem lífverur eignast eitt eða fleiri afkvæmi.
Í lok tímans var stutt upprifjun á efninu. Minni á könnun næsta föstudag, þ.e. 7. maí og þá er m.a. efni þessarar viku til prófs.
-
26. apríl – 8. bekkur
Posted on apríl 26th, 2010 No commentsVið byrjuðum að læra um eðli lífsins og einkenni lífvera. Nemendur fengu glærur um efnið.
-
19. – apríl – 8. bekkur
Posted on apríl 19th, 2010 No commentsVið notuðum tímann til þess að fjalla um eldgosið í Eyfjafjallajökli. Við skoðuðum myndir sem sendar hafa verið inn og hægt er að skoða hér.
Þessi mynd er tekin í Berjanesi undir Eyjafjöllum fyrir og eftir öskufall. Báðar myndirnar eru litmyndir.

-
16. apríl – 8. bekkur
Posted on apríl 16th, 2010 No commentsVið notuðum fyrri hluta tímans í að fjalla um eldgosið í Eyjafjallajökli en í seinni hluta tímans héldum við áfram að vinna verkefni sem tengjast varma og varmaorku. Í lok tímans átti að vera könnun en við frestuðum henni til mánudags vegna þess að fyrri hlutinn fór í eldgosið
-
15. apríl – 8. bekkur
Posted on apríl 15th, 2010 No commentsByrjuðum á að fjalla um eldgosið í Eyjafjallajökli. Héldum svo áfram að læra um varma og varmaorku. Byrjuðum tímann á að horfa á myndband um efnið. Svo var farið í tölvuver þar sem nemendur tóku tvö gagnvirk sjálfspróf.

