-
20. maí – 5. 6. og 7. bekkur
Posted on maí 20th, 2010 No commentsÞá er hefðbundinni kennslu í náttúrufræði lokið og við taka skógardagar og ferðalög í næstu viku. Ég vil þakka öllum fyrir samstarfið í vetur og hafið það sem allra best í allt sumar. Sjáumst svo hress aftur í haust.

-
11. maí – 7. bekkur
Posted on maí 11th, 2010 No commentsVerkefnavinna þar sem áherslan er á beinagrind og vöðva. Hluti verkefnanna er hægt að nálgast hér.
-
10. maí – 7. bekkur
Posted on maí 10th, 2010 No commentsÍ lífsleiknitímanum í dag fjölluðum við um breytingar líkamans, sjálfsmynd og fyrirmyndir. Ég nota vef námsgagnastofnunar mikið og hægt er að fara inn á hann hér.
Í náttúrufræðitímanum í dag lærðu nemendur um vöðva líkamans og beinagrindina. Nemendur fengu glærur.
Íslenskt heiti beins Latnesk heiti beins Stutt lýsing Hlutverk Viðbein Clavicula Frekar lítið bein, myndar S-línu Tengir herðablað og bringubein og tekur þátt í myndun axlarliðs Lærleggur Femur Stærsta bein líkamans, á því er væg sveigja Dálkur Fibula Veitir vöðvafestu og er veigaminna beinið í fótleggnum Upphandleggsbein Humerus Lengsta og stærsta bein í efri útlim Geislabein Radius Staðsett þumalsmegin í framhandlegg. Bugða liggur eftir endilöngu beininu Herðablað Scapula Flatt að hluta, þríhyrnt Olnbogabein Ulna Miðlægt bein í framhandlegg Hnéskel Patella Sköflungur Tibia Stórt bein í fótlegg Bringubein Os sternum Það veitir hjartanu vernd og festir framenda rifjanna. Blóðmergur beinsins framleiðir mikið af rauðum blóðkornum -
4. maí – 7. bekkur
Posted on maí 4th, 2010 No commentsNemendur unnu verkefni um nýrun í fyrri hluta tímans. Í seinni hlutanum fóru þeir í tölvuver og blogguðu.
-
3. maí – 7. bekkur
Posted on maí 3rd, 2010 No commentsÍ dag lærðu nemendur um nýru og þveiti. Nemendur fengu glærur um efnið.
-
27. apríl – 7. bekkur
Posted on apríl 28th, 2010 No commentsNemendur gerðu veggspjald um meltingu og hlutverk meltingarfæranna. Veggspjaldið prýðir nú einn vegginn í náttúrufræðistofunni.
-
26. apríl – 7. bekkur
Posted on apríl 26th, 2010 No commentsÍ dag lærðum við um meltingu. Nemendur fengu glærur sem hægt er að nálgast hér.
-
20. apríl – 7. bekkur.
Posted on apríl 20th, 2010 No commentsUmræður um eldgosið í Eyjafjallajökli.
Nemendur unnu hefti um hamskipti og í lok tímans var könnun úr efni 10. hlekks.
-
19. apríl – 7. bekkur
Posted on apríl 19th, 2010 No commentsVið byrjuðum á því að fjalla um eldgos í Eyjafjallajökli í fyrri hluta tímans en í seinni hlutanum var fyrirlestur um Hamskipti. Glærurnar getið þið nálgast hér.
-
15. apríl – 7. bekkur
Posted on apríl 13th, 2010 No commentsÍ dag var stöðvavinna og voru þrjár skyldustöðvar og sex valstöðvar í boði. Áherslan á skyldustöðvunum var
- mismundandi varmaflutningur
áherslan í valstöðvunum var á
- massa og þyngd
- hitastig °C
- samband ml og cm3
- mismunandi hreyfingu sameinda við mismunandi hitastig.
- varðeislu massans
- svara spurningum úr efni gærdagsins