-
20. maí – 5. 6. og 7. bekkur
Posted on maí 20th, 2010 No commentsÞá er hefðbundinni kennslu í náttúrufræði lokið og við taka skógardagar og ferðalög í næstu viku. Ég vil þakka öllum fyrir samstarfið í vetur og hafið það sem allra best í allt sumar. Sjáumst svo hress aftur í haust.

-
18. maí – 6. bekkur
Posted on maí 18th, 2010 No commentsNemendur unnu áfram í veðurbókunum sínum. Flestir eru langt komnir en eiga þó eftir nokkrar blaðsíður. Lokaskil á bókum er 20. maí og þá þurfa nemendur að vera búnir með merktar blaðsíður.
Upplýsingar um efnið er hægt að nálgast hér.
-
10. maí – 6. bekkur
Posted on maí 10th, 2010 No commentsNemendur kláruðu veggmyndirnar um veður og veðurfar.
Við notum sem fyrr vefinn veður og veðurfar og stjörnufræðivefinn.
-
4. maí – 6. bekkur
Posted on maí 4th, 2010 No commentsÍ dag unnu nemendur í veggmyndunum sínum. Við klárum þær í næstu viku.
Verkefnin eru;
- Skýstrókar og fellibyljir
- Veður og veðurfar
- Ský og úrkoma
- Lægðir og hæðir
- Þrumur og eldingar
Myndirnar fara svo upp á vegg í náttúrufræðistofunni.
-
3. maí – 6. bekkur
Posted on maí 3rd, 2010 No commentsÍ dag byruðu nemendur að vinna veggspjöld um veðrið. Við notum vefinn um veður og veðurfar til upplýsinga.
-
27. apríl – 6. bekkur
Posted on apríl 28th, 2010 No commentsÍ dag fengu nemendur vinnubækur um veðrið. Við notuðum fyrri hluta tímans til þess að fara yfir ýmis hugtök sem tengjast veðri og í seinni hlutanum unnu nemendur í veðravinnubækurnar sínar. Nemendur leita sér upplýsinga á veraldarvefnum, mest á veður og veðurfar og stjörnufræðivefnum.
-
26. apríl – 6. bekkur
Posted on apríl 26th, 2010 No commentsÍ dag byrjuðum við að læra um veður. Nemendur fengu glærur en við notum vef sem heitir veður og veðurfar og Stjörnufræðivefinn til þess að þar leita okkur upplýsinga um efnið.
-
20. apríl – 6. bekkur
Posted on apríl 20th, 2010 No commentsÍ dag var stöðvavinna þar sem áherslurnar eru á varmaflutning. Við kláruðum þær stöðvar sem ekki náðist að klára í síðustu viku.
Könnun í lok tímans.
-
19. apríl – 6. bekkur
Posted on apríl 19th, 2010 No commentsVið byrjuðum á því að fjalla um eldgosið í Eyjafjallajökli. Í seinni hluta tímans var fyrirlestur um varmaflutning og glærurnar getið þið nálgast hér.
-
13. apríl – 6. bekkur
Posted on apríl 13th, 2010 No commentsÍ dag var stöðvavinna og voru sex stöðvar í boði. Áherslan var á
- massa og þyngd
- hitastig °C
- samband ml og cm3
- mismunandi hreyfingu sameinda við mismunandi hitastig.
- varðeislu massans
- svara spurningum úr efni gærdagsins