-
20. maí – 5. 6. og 7. bekkur
Posted on maí 20th, 2010 No commentsÞá er hefðbundinni kennslu í náttúrufræði lokið og við taka skógardagar og ferðalög í næstu viku. Ég vil þakka öllum fyrir samstarfið í vetur og hafið það sem allra best í allt sumar. Sjáumst svo hress aftur í haust.

-
12. maí – 5. bekkur
Posted on maí 12th, 2010 No commentsNemendur kláruðu að búa til skógarbækurnar sínar í dag en það var ekki mikið unnið af verkefnum. Sumir náðu þó að teikna og skrifa um fugl/fuglana í skóginum.
-
10. maí – 5. bekkur
Posted on maí 10th, 2010 No commentsNemendur héldu áfram að vinna í skógarbókina sína. Við fundum fullt af smádýrum í síðustu viku og nemendur leituðu upplýsinga um þau, teiknuðu og skráðu niður. Við notum vef námsgagnastofnunar um smádýrin á landi og smádýrin í vatninu.

-
3. maí – 5. bekkur
Posted on maí 3rd, 2010 No commentsNemendur byrjuðu í skógarbókunum sínum í dag. Þeir teiknuðu og skrifuðu um það sem við gerðum og fundum síðastliðinn miðvikudag í skóginum.
-
28. apríl – 5. bekkur
Posted on apríl 28th, 2010 No commentsVið byrjuðum á því að fara út í skóg og setja upp skordýragildrur. Nemendur fundu sér stað sem þeir ætla að rannsaka næstu vikurnar og við tókum með okkur sýnir upp í náttúrufræðistofu sem við rannsökuðum í víðsjá og með stækkunarglerum.
-
26. apríl – 5. bekkur
Posted on apríl 26th, 2010 No commentsÍ dag byrjuðum við á undirbúning undir vinnu við skógarbók og rannsóknarvinnu í skóginum. Ég sýndi nemendum námvefi sem við notum mikið til þess að grein plöntur, skordýr og fugla. Vefir sem við notum eru;
-
19. apríl – 5. bekkur
Posted on apríl 19th, 2010 No commentsVið byrjuðum á að fjalla um eldgosið í Eyjafjallajökli svo var ég með fyrirlestur um rafmagn og segla. Nemendur fengu glærur sem hægt að nálgast hér.
-
14. apríl – 5. bekkur
Posted on apríl 15th, 2010 No commentsÍ dag unnu nemendur á sex mismunandi stöðvum sem allar tengdust rafmagni á einhvern hátt.
-
12. apríl – 5. bekkur
Posted on apríl 12th, 2010 No commentsÍ dag var fyrirlestur um rafmagn. Glærurnar finnið þið hér.
-
26. mars – 5. 6. 7. og 8. bekkur
Posted on mars 27th, 2010 No commentsSíðastliðin vika fór að miklu leyti í að undirbúa árshátíð skólans. Ég vil hins vegar benda þeim nemendum á sem hafa áhuga að fylgjast með eldgosinu á Fimmvörðuhálsi að hér er nýr vefur þar sem hægt er að fylgjast með því sem er að gerast.
Mynd tekin af vef ruv: Eldgos í Fimmvörðuhálsi http://www.ruv.is//frett/eldgos-i-fimmvorduhalsi
