-
23. apríl – 10. bekkur
Posted on apríl 23rd, 2010 No commentsVegna röskunar á kennsluáætlun á miðvikudaginn verður könnun úr námsefninu í stærðfræðitímanum í dag.
Gangi ykkur vel, kveðja Gyða Björk
-
21. apríl – 10. bekkur
Posted on apríl 21st, 2010 No commentsStutt en ekki svo létt könnun úr námsefni síðustu vikna. Skoðum frábærar bloggfærslur 10. bekkinga og ræðum skipulag næstu vikurnar fram að lokaprófi.
Skipulagið breyttist – við fengum fíkniefnafræðslu hjá Ingvari lögreglumanni í tímanum í dag.
Könnun úr 10. hlekk frestast til föstudags.
Takk fyrir veturinn -
gleðilegt sumar.
mín góða vina hér,
nú syng ég sumarkvæði,
því sumarið komið er,
sem unað öllu gefur svo andinn fer á kreik,
og Harpa vakið hefur sinn hörpustrengjaleik.
-
Blogg og könnun – 9. og 10. bekkur
Posted on apríl 19th, 2010 No commentsMuna eftir að blogga um gosið í Eyjafjallajökli og tengja við fróðleik um eldingar og eituráhrif öskunnar fyrir dýr.
Næsta miðvikudag stutt könnun úr námsefni hlekksins. Þið þurfið að lesa vel yfir glósur og skoða bloggsíðuna.
Áhersluatriði eru:
- Staðreynd – ráðgáta – tilgáta- tilraun- breyta-lögmál.
- Eðli orkunnar. Orka – vinna.
- Myndir orkunnar. Lögmál um varðveislu orku.
- Mælingar á orku.
- Sameindir – hreyfing þeirra – hitastig
- Varmaorka – eðlisvarmi
- Varmaflutningur (vamaleiðing, varmaburður, varmageislun)
- Hiti og varmi
- Hitaþensla
- Einangrun
- Ísland og jarðvarmi
- Gos og eldingar
- Gos og eiturefni
- Flúor – áhrif á menn og skepnur
-
19. apríl – 10. bekkur
Posted on apríl 19th, 2010 No commentsKlárum varmakaflann – einangrun, þensla og hitastýring. Varmaskipti ofl.
Rifjum upp rafmagn og ræðum eldgos og eldingar.
Ef tími vinnst til fræðumst við um kjarnorku.

- Hvað segja almannavarnir um eldgos?
- Hvaða áhrif hafa eldgos á dýr?………… og meiri fróðleikur um það
- RUV – aska undir Eyjafjöllum
- RUV – eldgos – gosmökkur – eldingar
- Eldingar á laugardag s.l.
- Hvernig myndast þrumur og eldingar?
- Eldingarfræðsla FSU
- Hægt er að fylgjast með eldingum kringum Ísland á eldingavefsíðu Veðurstofunnar.
- Hvernig skaða eldingar líkamann og hvernig má reyna að minnka þann skaða?
- Mikinn fróðleik um eldingar er að finna á Lightning and Atmospheric Electricity Research at the GHCC
-
15. apríl – 10. bekkur
Posted on apríl 15th, 2010 No commentsKíkjum á gosfréttir og að því loknu tekur við stöðvavinna.
Eftirfarandi í boði:
- Helstu orkumyndir – útskýrðu og nefndu dæmi.
- Samanburður celsíus- og kelvinkvarða – breytistuðlar
- Þáttagreining í tilraunum.
- Hugtakakort og glósur bragðbætt.
- Hvaða tilgangi gegnir einangrun?
- Framkvæmd tilraunar og skekkjugreining.
- Nýting jarðvarma.
- Lifandi vísindi – valin stutt grein og gerður úrdráttur – tengt viðfansefni dagsins.
- Varmi og hiti – hver er munurinn?
- Hvers vegna er meiri varmi í baðkari fullu af 40°C heitu vatni en í bolla sem inniheldur 70°C heitt kaffi?
- Hvernig virkar kæliskápur?
- Eðlisvarmi.
- Þensla fastra efna og daglegt líf.
- Stálull og batterí – hvers vegna er það eldfimt samband?
- Hreyfingar sameinda
Sem sagt úrvalið er nóg – vinnið sjálfstætt eða tvö og tvö saman. Klárið að minnsta kosti 8 stöðvar og skilið niðurstöðum úr tímanum til kennara í lokin.
Gangi ykkur vel.
-
14. apríl – 10. bekkur
Posted on apríl 14th, 2010 No commentsSambland af fréttum, innlögn og verkefnum í tölvuveri.
Byrjum á umræðu um eldgosið í Eyjafjallajökli skoðum aukafréttatíma RUV .
Vefmyndavél frá Hvolsvelli
Kíkjum á stutt innlegg frá Bill Nye og bloggsíður nemenda.
Förum yfir áhersluatriði og hugtök.
Verkefni í tölvuveri í seinni hluta tímans.
- Kíkja á valin blogg nemendanna
- sjálfspróf 1
- sjálfspróf 2
-
12. apríl – 10. bekkur
Posted on apríl 12th, 2010 No commentsFyrirlestrartími í dag. Glærur um varma. Rifjum upp og tengjum nýja þekkingu inn á hugtakakort.
Skoðuðum Hummer-hestakerru
-
Árshátíð og páskafrí.
Posted on mars 25th, 2010 No commentsÞessi síðasta vika fyrir páska hefur einkennst af undirbúningi fyrir árshátíð. Skemmtilegur tími og lifandi í skólanum.
Gleðilega árshátíð og páska.
Sjáumst hress og kát 6. apríl
-
10. bekkur – 24. mars
Posted on mars 24th, 2010 No commentsNú er formlega lokið þemaverkefni hjá 10. bekk. Í dag kláruðum við námsmat – nemendur sjálfsmat bæði einstaklings og hópa, auk þess sem þeir fylltu út viðhorfskönnun sem snéri að frammistöðu kennara. Takk fyrir samstarfið krakkar, mikið gaman að vinna með ykkur og við Evelyn erum búnar að setja einkunnir inn á Mentor-vefinn.
Kveðja Gyða Björk.
-
22. mars – 10. bekkur
Posted on mars 22nd, 2010 No commentsKynning
Nú er að ljúka samvinnuverkefni í
náttúrufræði og samfélagsfræði. Vinnan hefur gengið vel og nú er komið að því að skila af sér. Í dag verða síðustu tveir tímarnir notaðir til að kynna afrakstur hópavinnunnar. Hver hópur mun halda stutta kynningu, 10-15 mínútur, þar sem nemendur fara yfir vinnu síðustu þriggja vikna og sýna bloggsíðu sem þau hafa safnað inn á upplýsingum sem tengjast þeirra rannsóknarspurningum.
Kynningin verður í Kvíadal (í sal á neðri hæð í skólahúsnæðinu) og hefst klukkan 13:50.
Gaman væri ef foreldrar gæfu sér tíma til að koma og vera með okkur þessa stund.
Hér eru tengingar inn á bloggsíður sem nemendahópar í 10. bekk hafa unnið.


