-
12. maí – 10. bekkur
Posted on maí 12th, 2010 No commentsLokapróf
Niðurstöður
úr lokaprófi eru komnar í Mentor. Ég gerði sérstaka verkefnabók fyrir prófið. Þar getið þið séð einkunnir úr hverjum prófhluta. Fljótlega kemur svo inn einkunn fyrir blogg, kennaraeinkunn og sjálfsmat (sem því miður gleymdist í dag en við framkvæmum í byrjun næstu viku) og þá er þriðja önnin formlega kláruð. Námsmat 10. bekkjar byggir áI önn
20%
II önn
20%
III önn
20%
Lokapróf
40%
Nemendum fannst prófið létt, a.m.k. léttara en þau áttu von á. Vonandi verða ekki margir fyrir vonbrigðum því að þetta var nokkuð strembið, enda námsefnið yfirgripsmikið. Ég er mjög sátt með niðurstöðuna og vona að þið séuð það líka.
Hér læt ég fylgja með meðaleinkunnir bekkjarins úr hverjum þætti og svo heildarinnar. Þetta er ekki hægt að sýna í Mentor, en eru mikilvægar upplýsingar fyrir ykkur.
Vægi Prófþáttur meðaleinkunn A 10% Stjörnufræði 8,36 B 10% Eðlisfræði 6,95 C 10% Efnafræði 8,09 D 10% Líffræði 7,59 E 60% Fjölval 70 % líffræði og 30 % aðrar áherslur 6,55 100% Heildareinkunn 7,0 Læt gott heita. Bestu kveðjur Gyða Björk
-
12. maí – 10. bekkur
Posted on maí 12th, 2010 No commentsLoksins, loksins komið að lokum í náttúrufræðikennslunni.
Einkunnir fyrir verkefni eru komnar inn á Mentor og 3.annareinkunn birtist mjög fljótlega sem og lokaprófið. Endilega að hafa samband ef eitthvað er óljóst eða þið eruð ekki sátt. Öllum velkomið að skoða prófúrlausnir.
Nú taka við danskir dagar og ferðalög – bara gaman.
Og svo kemur væmni kaflinn:
Það hefur verið frábært að kenna ykkur þetta skólaárið sem og hin fyrri. Þið eruð skemmtilegur nemendahópur með marga ólíka einstaklinga sem samt ná vel saman sem bekkur. Ég á eftir að sakna ykkar……sniff, sniff, en það er huggun harmi gegn að þið eigið eftir að láta ljós ykkar skína skært og þá get ég fylgst stolt með úr fjarlægð
. Gangi ykkur alltaf sem allra best,
ykkar Gyða Björk.
Og svo …….
-
11. maí – 10. bekkur.
Posted on maí 11th, 2010 No commentsJæja elskurnar mínar. Nú sitið þið sveitt við prófalestur – bæði danska og náttúrufræði á morgun.
Vildi bara senda ykkur baráttukveðjur ég veit að þið rúllið þessu upp. Prófið er uppbyggt eins og ég upplýsti á mánudaginn.
- 40% fullyrðingar og tengispurningar.
- 60% fjölvalsspurningar
Við fáum salinn kl 12.20 (þið farið í mat fyrir kl. 12) og svo sjáum við til hvað þið þurfið langan tíma. Ég geri ráð fyrir tveimur kennslustundum en ef það dugar ekki nýtum við okkur valtímann.
Muniði bara að borða vel, sofa vel, gera eitthvað skemmtilegt með lestrinum.
Ekkert stress…….bless, bless.
Gyða Björk
-
10. maí – 10. bekkur
Posted on maí 10th, 2010 No commentsOg nú er síðasti tíminn í náttúrufræði runninn upp. Sól og blíða úti sem inni.
Við skulum slá á allt prófastress, kíkjum á fréttir og röbbum saman. Að sjálfsögðu reyni ég að svara spurningum varðandi prófið ef einhverjar eru!
-
6. maí – 10. bekkur
Posted on maí 6th, 2010 No commentsUpprifjun! Hvað er nú það?….Hefur gengið vel hingað til og nú er bara einn tími eftir … svo próf… og svo
jarðeðlisfræði og fleira tekið fyrir í dag.
Afhent upprifjunarhefti og skoðum líka gömul próf.
-
5. maí – 10. bekkur
Posted on maí 5th, 2010 No commentsOg enn meiri upprifjun
Skoðum fréttir og blogg í byrjun tíma – aðallega nemendabloggiðFörum svo yfir efnafræðina…..bara gaman!
- frumefni, efnasambönd, efnablöndur, efnaformúlur
- hamskipti efna, bræðslumark og suðumark, áhrif loftþrýstings
- efnaleysing, mettun lausna

- efnahvörf – myndefni og hvarfefni
- rafeindir, róteindir, nifteindir
- lotukerfið, sætistala, massatala, lotur, flokkar,
- efnaeiginleikar efna eftir stöðu í lotukerfinu,
- náttúruleg frumefni – geislavirkni
- sérstaka vetnis – sérstaða kolefnis
- efnajöfnur, geta stillt einfaldar efnajöfnur
- jónir
- sýrur og basar
-
3. maí – 10. bekkur
Posted on maí 3rd, 2010 No commentsHöldum áfram upprifjun. Í dag tekur við eðlisfræði. Nýtum okkur tímana í þessari viku og förum yfir efnafræði, eðlisfræði krafta, bylgjur og ekki má gleyma jarðeðlisfræðinni. Þið fáið upprifjunarhefti í tímanum. Skoðum gamlar glósur og vikunni kíkjum við á gömul próf og vinnum nokkur verkefni.
En ekki má gleyma að kíkja á gosið í Eyjafjallajökli og svo vorboðana:
Skoðum nýjar fréttir af gosi. …af mbl.is og vef veðurstofunnar
Nýjasta nýtt um hrossgaukinn af Journal of Experimental Biology.
Myndband af hrossagauksfjöður, blaktandi í vindi, má sjá á vef BBC.
Og svo hunangsfluga að lenda
-
29. apríl – 10. bekkur
Posted on apríl 29th, 2010 No commentsLjúkum upprifjun í líffræðinni. Erfðir og þróun í dag. Förum yfir áhersluatriði og spreytum okkur á gömulum prófum. Þeir sem vilja geta fengið bækur lánaðar en ég bendi ykkur á að nota vinnubækurnar – í þeim eru öll aðalatriðin útskýrð í glósum og verkefnum. Gangi ykkur vel
Læt hér fylgja með áhersluatriðin í líffræðinni vegna vorprófs 2010
- Einkenni og nauðþurftir lífvera
- Flokkunarkerfi lífvera.
- Frumuöndun og ljóstillifun.
- Samanburður á plöntufrumu og dýrafrumu.
- Uppbygging og sérhæfing frumna.
- Sérhæfing og hlutverk frumulíffæra.
- Frumuskipting, frjóvgun og þroskun.
- Osmósa, flæði og burður.
- Skipulagsstig lífvera; fruma, vefur, líffæri, líffærakerfi og lífvera.
- Samskipti lífvera, fæðukeðjur og fæðuvefir.
- Hringrás efna í náttúrunni, ljóstillifun, bruni og rotnun.
- Orkuþörf og orkuöflun lífvera
- Ólífræn og lífræn efni, prótín, sykur-, fitu- og erfðaefni
- Gildi fjölbreytileika lífvera
- DNA, gen og litningar.
- Vistkerfi: Orkuflæði, samspil lífvera innbyrðis og við lífvana umhverfi
- Flokkunarkerfi lífvera, heildarsýn
- geta útskýrt sérstöðu lífvera hvers ríkis og mikilvægi þeirra fyrir aðrar lífverur
- Líf myndast einungis af öðru lífi með kynlausri æxlun eða kynæxlun
- Gera sér grein fyrir að lífverur þroskast á mismunandi hátt á lífsleiðinni,
- sumar þroskast jafnt og þétt með hægfara breytingum
- aðrar taka miklum umskiptum á þroskaferlinum
- Ríki plantna – lauslega
- Þekkja mun á berfrævingi og dulfrævingi
- þekkja mun á lauftré og barrtré
- Ríki dýra – lauslega
- hryggleysingjar – myndbreyting.
- Þekkja mun á skordýri og áttfætlu
- hryggdýr – lauslega
- Þekkja einkenni spendýra.
- Gildi og fjölbreytileiki lífvera
- Veirur
- Ríki frumvera
- Ríki dreifkjörnunga
- Ríki sveppa lauslega
- DNA, gen og litningar
- Ríkjandi og víkjandi gen
- Arfhreinn og arfblendinn
- Líkindi og erfðaeiginleikar
- Litningar mannsins: Breytileiki og sérstaða kynlitninga
- Þróunarkenning Darwins og náttúruval
- Fjölbreytni í erfðum, kynbundnar erfðir og blóðflokkar mannsins
-
28. apríl – 10. bekkur
Posted on apríl 28th, 2010 No commentsUpprifjun heldur áfram. Líffræði – flokkun lífvera – einkenni helstu ríkjanna.
-
26. apríl – 10. bekkur
Posted on apríl 26th, 2010 No commentsÞá er komið að upprifjun fyrir lokaprófið í maí. Þessa viku verðum við að rifja upp líffræði-hlutann. Byrjum í dag á einkennum lífvera, efnum í lífverum, skipulagi lífvera frá frumu til lífveru og vistfræði.
Þið fáið afhent lítið upprifjunarkver og verðið að vera dugleg að punkta niður.





