Náttúrufræði Flúðaskóla 5.-10. bekkur
RSS icon Email icon
  • 11. janúar – 6. bekkur

    Posted on janúar 11th, 2010 hallas No comments

    Allir nemendur unnu í skýrslugerð í  dag og undirbjuggu sig undir kynningu á tilraun sem er á morgun.

  • 8. janúar – 8. bekkur

    Posted on janúar 8th, 2010 hallas No comments

    Nemendur kynntu veggspjöldin sín í dag.  Flestum gekk vel og komu vel undirbúnir.  Við fórum líka yfir könnum sem ég lagði fyrir í 4. hlekk um krafta og vinnu.

  • 6. janúar – 9. bekkur

    Posted on janúar 6th, 2010 gydabjork No comments

    Nemendur fengu afhent námsmat í glærukynningarverkefni.

    Bekknum skipt upp í 3 – 4 manna hópa. Unnið á stöðvum.

    •  Byrjað að undirbúa verkefni um fræga eðlisfræðinga.  Hóparnir lásu um merka menn og konur og velja sér einstakling til að fjalla um.
    • Verkefni í eðlisfræði úr heftinu – Tími, lengd og hreyfing – bls. 20 -21.
    • Tölvur – upplýsingaöflun og blogg.
  • 4. janúar – 8. bekkur

    Posted on janúar 4th, 2010 hallas No comments

    Í þessum hlekk höldum við áfram með krafta og hreyfingu en fyrir jólin, þ.e.  26. október – 10. nóvember (hlekkur 4) unnum við með þetta en náðum ekki að klára sómasamlega.   Næstu tvær vikurnar fara í að klára efnið og skila af sér.   

    Í dag glósuðu nemendur inn á glærur sem þeir fengu í 4. hlekk auk þess að svara spurningum úr efninu. Það er liður í undirbúningi undir að kynna veggspjöld sem þeir gerðu í lok 4. hlekks.

  • 4. janúar – 7. bekkur

    Posted on janúar 4th, 2010 hallas No comments

    Við byrjuðum á 6. hlekk sem við köllum vísindavöku.  Nemendur völdu sér tilraunir sem þeir svo sýna og kynna fyrir hinum í næstu viku.

  • 11. desember – 8. bekkur

    Posted on desember 11th, 2009 hallas No comments

    Í dag var fjölbreytt verkefnavinna þar sem nemendur völdu um að búa til veggmyndir, teikna kvartílaskipti og sjávarföll í vinnubækur, vinna verkefnablöð úr efninu, undirbúa sig undir könnun sem verður næsta mánudag og við enduðum tímann á að fara í tölvuver og blogga.

  • 7. desember – 7. bekkur

    Posted on desember 7th, 2009 hallas No comments

    Nemendur undirbjuggu fyrirlestra á morgun um jarðsöguna og risaeðlur.

  • 30. nóvember – 5. bekkur

    Posted on nóvember 30th, 2009 hallas No comments

    Í dag var fyrirlestur um loftslag á Íslandi og nemendur fengu þessar glærur.

  • 27. nóvember – 8. bekkur

    Posted on nóvember 27th, 2009 hallas No comments

    Í dag var stöðvavinna þar sem nemendur unnu á sex stöðvum sem tengdust  lofthjúp og hvolfum.  Í lok tímans fóru allir í tölvuver og blogguðu.  Ég vil hvetja alla sem lesa þetta að skoða nemendabloggin þar sem þau eru flest afar vel unnin hjá nemendum og þeim til sóma.

  • 25. nóvember – 5. bekkur

    Posted on nóvember 26th, 2009 hallas No comments

    Unnum fjölbreytta stöðvavinnu þar sem efnið tengist eldgosum og flekaskilum.