Náttúrufræði Flúðaskóla 5.-10. bekkur
RSS icon Email icon
  • 10. maí – 6. bekkur

    Posted on maí 10th, 2010 hallas No comments

    Nemendur kláruðu veggmyndirnar um veður og veðurfar.

    Við notum sem fyrr vefinn veður og veðurfar og stjörnufræðivefinn.

     

     

  • 10. maí – 7. bekkur

    Posted on maí 10th, 2010 hallas No comments

     Í lífsleiknitímanum í dag fjölluðum við um breytingar líkamans, sjálfsmynd og fyrirmyndir.  Ég nota vef námsgagnastofnunar mikið og hægt er að fara inn á hann  hér.

    Í náttúrufræðitímanum í dag lærðu nemendur um vöðva líkamans og beinagrindina.  Nemendur fengu glærur.

    .

    Íslenskt heiti beins Latnesk heiti beins Stutt lýsing Hlutverk
    Viðbein Clavicula Frekar lítið bein, myndar S-línu Tengir herðablað og bringubein og tekur þátt í myndun axlarliðs
    Lærleggur Femur Stærsta bein líkamans, á því er væg sveigja  
    Dálkur Fibula Veitir vöðvafestu og er veigaminna beinið í fótleggnum  
    Upphandleggsbein Humerus Lengsta og stærsta bein í efri útlim  
    Geislabein Radius Staðsett þumalsmegin í framhandlegg. Bugða liggur eftir endilöngu beininu  
    Herðablað Scapula Flatt að hluta, þríhyrnt  
    Olnbogabein Ulna Miðlægt bein í framhandlegg  
    Hnéskel Patella    
    Sköflungur Tibia Stórt bein í fótlegg  
    Bringubein Os sternum   Það veitir hjartanu vernd og festir framenda rifjanna. Blóðmergur beinsins framleiðir mikið af rauðum blóðkornum

    Sótt frá „http://is.wikipedia.org/wiki/Beinagrind_mannsins

  • 10. maí – 9. bekkur

    Posted on maí 10th, 2010 gydabjork No comments

    Dagskráin í dag:

    Skoðum dagan fram að sumarfríi.

    Ræðum nýjar fréttir af gosi og öðru markverðu.

    Stuttur fyrirlestur um liðdýr.  Skoðum frábærur glærur frá Guðfinnu í FÁ.  Berum saman skordýr og áttfætlur.

    Skoðum myndir þessu tengdar.

  • 10. maí – 10. bekkur

    Posted on maí 10th, 2010 gydabjork No comments

    Og nú er síðasti tíminn í náttúrufræði runninn upp. Sól og blíða úti sem inni.

    Við skulum slá á allt prófastress,  kíkjum á fréttir og röbbum saman.  Að sjálfsögðu reyni ég að svara spurningum varðandi prófið ef einhverjar eru!

  • 10. maí – 8. bekkur

    Posted on maí 9th, 2010 hallas No comments

    Við fórum yfir verkaskiptingu og skipulag lífvera í dag og nemendu fengu glærur.  Efnið er fengið úr bókinni Einkenni lífvera, 4. kafli - bls. 73-81.

    Samantekt úr efninu

    4-1 verkaskipting

    • í einfruma lífveru sinnir eina fruman öllum störfum sem vinna þarf til þess að hún megi halda lífi.
    • í fjölfruma lífveru gegnir hver líkamshluti ákveðnu starfi. þessi verkaskipting er til hagsbóta fyrir lífveruna.

    4-2 skipulag lífvera.

    • fruman er lægsta skipulagsstigið.  Hún er grunneining lífsins, bæði hvað snertir byggingu og starf.
    • í fjölfruma lífveru vinna mismunandi gerðir frumna sérhæft störf. Hver frumugerð lifir ekki án frumna annarra gerða og lífveran í heild kemst heldur ekki af án samvinnu frumnanna.
    • skipulagsstigin fimm – raðað saman frá því smæsta og einfaldasta til hins stærsta og flóknasta – eru frumur, vefir, líffæri, líffærakerfi og lífverur.
    • frumur eru áþekkar að gerð og í starfi skipast saman og mynda vefi. Beinfrumur mynda til dæmis beinvef í blettatígrinum, sterkan og þéttan vef sem ræður miklu um líkamslögun hans og ber líkamann uppi.
    • Plöntur eru gerðar úr vefjum á sama hátt og dýr. Laufblöð og stönglar plöntu eru til dæmis þakin sérstakri gerð vefjar sem kallast yfirhúð. Hún verndar plöntuna og kemur í veg fyrir að hún missi óþarflega mikið vatn.
    • hópur ólíkra vefja vinnur saman sem eitt líffæri. Þannig er hjarta blettatígursins gert úr taugavef, vöðvavef og þekjuvef. Hver vefjagerð hefur sínu sérstaka hlutverki að gegna.
    • rót, stöngull og laufblöð eru helstu líffæri plantna.
    • hópur mismunandi líffæra sem vinna saman að tilteknu starfi kallast líffærakerfi.
    • fjöldi líffæra í hverju líffærakerfi er mismunandi eftir tegundum lífvera.  Blettatígur og önnur þróuð dýr hafa til dæmis taugakerfi sem gert er úr heila, mænu og taugum.  Armslanga er hins vegar lítt þróað dýr með taugakerfi sem er bara einfalt net taugafrumna sem kvíslast um líkamann.
    • lífvera er lifandi líkami í heild sinni sem annast alla þá starfsemi sem einkennir lífið. Flóknar lífverur eru úr líffærakerfum. Þær skipa æðsta skipulagsstigið.
    • í flókinni lífveru gegnir hvert líffærakerfi sérstöku hlutverki en öll vinna þau saman að því að halda lífverunni lifandi.

                                                                                                                                                             Armslanga

  • 6. maí – 10. bekkur

    Posted on maí 6th, 2010 gydabjork No comments

    Upprifjun!  Hvað er nú það?….Hefur gengið vel hingað til og nú er bara einn tími eftir … svo próf… og svo  :-)

    jarðeðlisfræði og fleira tekið fyrir í dag. 

    Afhent upprifjunarhefti og skoðum líka gömul próf.

  • 6. maí – 9. bekkur

    Posted on maí 6th, 2010 gydabjork No comments

    Verðum úti í blíðunni.  smiley

    Greinum barrtré – kíkjum á skordýragildrur – fræðsla og leikir.

  • 7. maí – 8. bekkur

    Posted on maí 6th, 2010 hallas No comments

    Klárum kaflann um einkenni lífvera, upprifjun, útikennsla, könnun.

    • Skoða fréttir og blogg
    • Greina barrtré
    • Skila verkefni eftir útivinnu
    • Upprifjun á efninu
    • Könnun úr efninu

     

  • 5. maí – 10. bekkur

    Posted on maí 5th, 2010 gydabjork No comments

    Og enn meiri upprifjun

    smiley_eyebrows_winkingSkoðum fréttir og blogg í byrjun tíma – aðallega nemendabloggið

    Förum svo yfir efnafræðina…..bara gaman!

    • frumefni, efnasambönd, efnablöndur, efnaformúlur
    • hamskipti efna, bræðslumark og suðumark, áhrif loftþrýstings
    • efnaleysing, mettun lausnaTWGstt_teachers004
    • efnahvörf – myndefni og hvarfefni
    • rafeindir, róteindir, nifteindir
    • lotukerfið, sætistala, massatala, lotur, flokkar,
    • efnaeiginleikar efna eftir stöðu í lotukerfinu,
    • náttúruleg frumefni – geislavirkni
    • sérstaka vetnis – sérstaða kolefnis
    • efnajöfnur, geta stillt einfaldar efnajöfnur
    • jónir
    • sýrur og basar
  • 5. maí – 9. bekkur

    Posted on maí 5th, 2010 gydabjork No comments

    Við byrjum kennslustund inni audnutittlingur

    • skoðum fréttir.
    • rifjum upp hugtök og bætum nýjum við á kortið.
    • kíkjum á nemendablogg.

    Færum okkur út

    • verkefnavinna tengd námsefninu.
    • komum fyrir skordýragildrum – undirbúningur fyrir næstu viku.
    • sögustund og leikur í lok tíma.