Náttúrufræði Flúðaskóla 5.-10. bekkur
RSS icon Email icon
  • 12. maí – 10. bekkur

    Posted on maí 12th, 2010 gydabjork No comments

    Lokapróf

    Niðurstöðurimportance-of-reading-skills-445px úr lokaprófi eru komnar í Mentor.  Ég gerði sérstaka verkefnabók fyrir prófið.  Þar getið þið séð einkunnir úr hverjum prófhluta. Fljótlega kemur svo inn einkunn fyrir blogg, kennaraeinkunn og sjálfsmat (sem því miður gleymdist í dag en við framkvæmum í byrjun næstu viku) og þá er þriðja önnin formlega kláruð.  Námsmat 10. bekkjar byggir á

    I önn

    20%

    II önn

    20%

    III önn

    20%

    Lokapróf

    40%

    Nemendum fannst prófið létt, a.m.k. léttara en þau áttu von á.  Vonandi verða ekki margir fyrir vonbrigðum því að þetta var nokkuð strembið, enda námsefnið yfirgripsmikið.   Ég er mjög sátt með niðurstöðuna og vona að þið séuð það líka.

    Hér læt ég fylgja með meðaleinkunnir bekkjarins úr hverjum þætti og svo heildarinnar.  Þetta er ekki hægt að sýna í Mentor, en eru mikilvægar upplýsingar fyrir ykkur.

    Vægi Prófþáttur meðaleinkunn
    A 10% Stjörnufræði 8,36
    B 10% Eðlisfræði 6,95
    C 10% Efnafræði 8,09
    D 10% Líffræði 7,59
    E 60% Fjölval              70 % líffræði og                 30 % aðrar áherslur 6,55
    100% Heildareinkunn 7,0
    Læt gott heita.

    Bestu kveðjur Gyða Björk

  • 17. maí – 8. bekkur

    Posted on maí 12th, 2010 hallas No comments

    Í dag fengu nemendur verkefnablöð sem þarf að vinna og skila næsta föstudag.  Á föstudag er síðasta kennslustundin á þessari önn og þá skila nemendur vinnumöppunum sínum með þessu verkefnablaði en það á að vera fremst í möppunni svo ég finni það strax.  Ég mun svo setja það á réttan stað í möppuna.

  • 12. maí – 5. bekkur

    Posted on maí 12th, 2010 hallas No comments

    Nemendur kláruðu að búa til skógarbækurnar sínar í dag en það var ekki mikið unnið af verkefnum.  Sumir náðu þó að teikna og skrifa um fugl/fuglana í skóginum.

  • 12. maí – 10. bekkur

    Posted on maí 12th, 2010 gydabjork No comments

    Loksins, loksins komið að lokum í náttúrufræðikennslunni.

    Einkunnir fyrir verkefni eru komnar inn á Mentor og 3.annareinkunn birtist mjög fljótlega sem og lokaprófið.  Endilega að hafa samband ef eitthvað er óljóst eða þið eruð ekki sátt.  Öllum velkomið að skoða prófúrlausnir.

    Nú taka við danskir dagar og ferðalög – bara gaman.

    Og svo kemur væmni kaflinn:

    Það hefur verið frábært að kenna ykkur þetta skólaárið sem og hin fyrri.  Þið eruð skemmtilegur nemendahópur með marga ólíka einstaklinga sem samt ná vel saman sem bekkur.  Ég á eftir að sakna ykkar……sniff, sniff, en það er huggun harmi gegn að þið eigið eftir að láta ljós ykkar skína skært og þá get ég fylgst stolt með úr fjarlægð  :) .

    Gangi ykkur alltaf sem allra best,

    ykkar Gyða Björk.

    Og svo …….

  • 12. maí – 9. bekkur

    Posted on maí 12th, 2010 gydabjork No comments

    Útikennsla í skóginum.smiley_spider

    Við verðum í skóginum í dag.

    • Tæmum hryggleysingja – gildrurnar okkar.
    • Kíkjum á innihaldið – rifjum upp frá síðasta tíma – liðdýr, skordýr, áttfætlur, fullkomin myndbreyting, ófullkomin myndbreyting, meyfæðing o.s.frv.
    • Skoðum í víðsjá og greinum og flokkum.
    • Tengjum við vistfræði – fæðukeðjur og fæðuvefi, frumbjarga og ófrumbjarga lífverur.
    • Kveikjum í eldstæði.  Helga Teits mætir með brauðdeig og fyllingar,  epli og sósur.  Við  bökum, skerum, grillum og borðum saman.
    • Segjum sögur og förum í minnisleik.

    Vonandi mæta allri vel búnir – gæti skúrað í dag.

    Hittumst hress og kát,

    Gyða Björk.