Náttúrufræði Flúðaskóla 5.-10. bekkur
RSS icon Email icon
  • 10. maí – 5. bekkur

    Posted on maí 10th, 2010 hallas No comments

    Nemendur héldu áfram að vinna í skógarbókina sína.  Við fundum fullt af smádýrum í síðustu viku og nemendur leituðu upplýsinga um þau, teiknuðu og skráðu niður.  Við notum vef námsgagnastofnunar um smádýrin á landi og smádýrin í vatninu.

  • 10. maí – 6. bekkur

    Posted on maí 10th, 2010 hallas No comments

    Nemendur kláruðu veggmyndirnar um veður og veðurfar.

    Við notum sem fyrr vefinn veður og veðurfar og stjörnufræðivefinn.

     

     

  • 10. maí – 7. bekkur

    Posted on maí 10th, 2010 hallas No comments

     Í lífsleiknitímanum í dag fjölluðum við um breytingar líkamans, sjálfsmynd og fyrirmyndir.  Ég nota vef námsgagnastofnunar mikið og hægt er að fara inn á hann  hér.

    Í náttúrufræðitímanum í dag lærðu nemendur um vöðva líkamans og beinagrindina.  Nemendur fengu glærur.

    .

    Íslenskt heiti beins Latnesk heiti beins Stutt lýsing Hlutverk
    Viðbein Clavicula Frekar lítið bein, myndar S-línu Tengir herðablað og bringubein og tekur þátt í myndun axlarliðs
    Lærleggur Femur Stærsta bein líkamans, á því er væg sveigja  
    Dálkur Fibula Veitir vöðvafestu og er veigaminna beinið í fótleggnum  
    Upphandleggsbein Humerus Lengsta og stærsta bein í efri útlim  
    Geislabein Radius Staðsett þumalsmegin í framhandlegg. Bugða liggur eftir endilöngu beininu  
    Herðablað Scapula Flatt að hluta, þríhyrnt  
    Olnbogabein Ulna Miðlægt bein í framhandlegg  
    Hnéskel Patella    
    Sköflungur Tibia Stórt bein í fótlegg  
    Bringubein Os sternum   Það veitir hjartanu vernd og festir framenda rifjanna. Blóðmergur beinsins framleiðir mikið af rauðum blóðkornum

    Sótt frá „http://is.wikipedia.org/wiki/Beinagrind_mannsins

  • 10. maí – 9. bekkur

    Posted on maí 10th, 2010 gydabjork No comments

    Dagskráin í dag:

    Skoðum dagan fram að sumarfríi.

    Ræðum nýjar fréttir af gosi og öðru markverðu.

    Stuttur fyrirlestur um liðdýr.  Skoðum frábærur glærur frá Guðfinnu í FÁ.  Berum saman skordýr og áttfætlur.

    Skoðum myndir þessu tengdar.

  • 10. maí – 10. bekkur

    Posted on maí 10th, 2010 gydabjork No comments

    Og nú er síðasti tíminn í náttúrufræði runninn upp. Sól og blíða úti sem inni.

    Við skulum slá á allt prófastress,  kíkjum á fréttir og röbbum saman.  Að sjálfsögðu reyni ég að svara spurningum varðandi prófið ef einhverjar eru!