Náttúrufræði
Náttúrufræði Flúðaskóla 5.-10. bekkur
-
3. maí – 8. bekkur
Posted on maí 3rd, 2010 No commentsÍ dag héldum við áfram með 2. kafla í bókinni Einkenni lífvera. Nemendur fengu glærur úr efninu og hægt er að nálgast þær hér.
Áherslur þessa vikuna er á nauðþurftir lífvera, þ.e.
- Lífverur þarfnast orku til þess að nota við efnaskipti. Sólin er frumuppspretta þeirrar orku sem langflestar lífverur nota.
- Allar lífverur þarfnast næringar og vatns.
- Lífverur taka til sín súrefni úr andrúmslofti eða súrefni sem er uppleyst í vatni og nota það við öndun. Plöntur nota koltvíoxíð til þess að búa til fæðuefni.
- Semkeppni er barátta um fæðu, vatn og orku.
- Samvægi er hæfni lífveru til þess að halda innra umhverfi líkamans í jafnvægi þótt skilyrði umhverfis breytist.
- Jafnheit dýr halda líkamshitanum stöðugum. Líkamshiti misheitra dýra sveiflast með hita umhverfisins.
Og efni í lífverum, þ.e.
- Frumefni eru hrein efni sem er ekki hægt að brjóta niður í smærri efni með hefðbundnum, efnafræðilegum aðferðum. Efnasambönd verða til þegar tvö eða fleiri frumefni hvarfast saman og bindast efnatengjum.
- Fæst ólífræn efnasambönd innihalda kolefni. Lífræn efnasambönd innihalda kolefni ásamt öðrum frumefnum, s.s. vetni og súrefni. Mikilvægustu lífrænu efnasamböndin í lífverum eru sykrur, fituefni, prótín, ensím og kjarnsýrur.
- DKS og RKS eru tvær mikilvægar gerðir kjarnsýrna. Þær varðveita upplýsingar um gerð prótína, stýra myndun þeirra og ákvarða þar með eiginleika hverrar lífveru.
Leave a reply