Náttúrufræði Flúðaskóla 5.-10. bekkur
RSS icon Email icon
  • 3. maí – 8. bekkur

    Posted on maí 3rd, 2010 hallas No comments

    Í dag héldum við áfram með 2. kafla í bókinni Einkenni lífvera.  Nemendur fengu glærur úr efninu og hægt er að nálgast þær hér

    Áherslur þessa vikuna er á  nauðþurftir lífvera, þ.e.

    • Lífverur þarfnast orku til þess að nota við efnaskipti. Sólin er frumuppspretta þeirrar orku sem langflestar lífverur nota.
    • Allar lífverur þarfnast næringar og vatns.
    • Lífverur taka til sín súrefni úr andrúmslofti eða súrefni sem er uppleyst í vatni og nota það við öndun. Plöntur nota koltvíoxíð til þess að búa til fæðuefni.
    • Semkeppni er barátta um fæðu, vatn og orku.
    • Samvægi er hæfni lífveru til þess að halda innra umhverfi líkamans í jafnvægi þótt skilyrði umhverfis breytist.
    • Jafnheit dýr halda líkamshitanum stöðugum. Líkamshiti misheitra dýra sveiflast með hita umhverfisins.

    Og efni í lífverum, þ.e.

    • Frumefni eru hrein efni sem er ekki hægt að brjóta niður í smærri efni með hefðbundnum, efnafræðilegum aðferðum. Efnasambönd verða til þegar tvö eða fleiri frumefni hvarfast saman og bindast efnatengjum.
    • Fæst ólífræn efnasambönd innihalda kolefni. Lífræn efnasambönd innihalda kolefni ásamt öðrum frumefnum, s.s. vetni og súrefni. Mikilvægustu lífrænu efnasamböndin í lífverum eru sykrur, fituefni, prótín, ensím og kjarnsýrur.
    • DKS og RKS eru tvær mikilvægar gerðir kjarnsýrna. Þær varðveita upplýsingar um gerð prótína, stýra myndun þeirra og ákvarða þar með eiginleika hverrar lífveru.

    Bruni næringarefna og offita

  • 3. maí – 7. bekkur

    Posted on maí 3rd, 2010 hallas No comments

    Í dag lærðu nemendur um nýru og þveiti.  Nemendur fengu glærur um efnið.

  • 3. maí – 6. bekkur

    Posted on maí 3rd, 2010 hallas No comments

    Í dag byruðu nemendur að vinna veggspjöld um veðrið. Við notum vefinn um veður og veðurfar til upplýsinga.

  • 3. maí – 5. bekkur

    Posted on maí 3rd, 2010 hallas No comments

    Nemendur byrjuðu í skógarbókunum sínum í dag.  Þeir teiknuðu og skrifuðu um það sem við gerðum og fundum síðastliðinn miðvikudag í skóginum.

  • 3. maí – 10. bekkur

    Posted on maí 3rd, 2010 gydabjork No comments

    Höldum áfram upprifjun.  Í dag tekur við eðlisfræði.  Nýtum okkur tímana í þessari viku og förum yfir efnafræði, eðlisfræði krafta, bylgjur og ekki má gleyma jarðeðlisfræðinni.  Þið fáið upprifjunarhefti í tímanum. Skoðum gamlar glósur og vikunni kíkjum við á gömul próf og vinnum nokkur verkefni.

    En ekki má gleyma að kíkja á gosið í Eyjafjallajökli og svo vorboðana:

    Skoðum nýjar fréttir af gosi.  …af mbl.is og vef veðurstofunnar

    Nýjasta nýtt um hrossgaukinn af Journal of Experimental Biology.

    Myndband af hrossagauksfjöður, blaktandi í vindi, má sjá á vef BBC.

    Og svo hunangsfluga að lenda

  • 3. maí – 9. bekkur

    Posted on maí 3rd, 2010 gydabjork No comments

    Fyrirlestrartími í dag.  Rifjum upp flokkun einfruma lífvera bæði dreifkjörnunga og heilkjörnunga.  Bætum við hugtakakortið og byrjum á svepparíkinu.  Glósur um sveppi.

    Berserkjasveppurinn (Amanita muscaria)

    Berserkjasveppurinn (Amanita muscaria)

    Skoðum nýjar fréttir af gosi.  …af mbl.is og vef veðurstofunnar

    Nýjasta nýtt um hrossgaukinn af Journal of Experimental Biology.

    Myndband af hrossagauksfjöður, blaktandi í vindi, má sjá á vef BBC.

    Og svo hunangsfluga að lenda

    Kíkjum á nemendablogg