-
20. maí – 5. 6. og 7. bekkur
Posted on maí 20th, 2010 No commentsÞá er hefðbundinni kennslu í náttúrufræði lokið og við taka skógardagar og ferðalög í næstu viku. Ég vil þakka öllum fyrir samstarfið í vetur og hafið það sem allra best í allt sumar. Sjáumst svo hress aftur í haust.

-
18. maí – 6. bekkur
Posted on maí 18th, 2010 No commentsNemendur unnu áfram í veðurbókunum sínum. Flestir eru langt komnir en eiga þó eftir nokkrar blaðsíður. Lokaskil á bókum er 20. maí og þá þurfa nemendur að vera búnir með merktar blaðsíður.
Upplýsingar um efnið er hægt að nálgast hér.
-
12. maí – 10. bekkur
Posted on maí 12th, 2010 No commentsLokapróf
Niðurstöður
úr lokaprófi eru komnar í Mentor. Ég gerði sérstaka verkefnabók fyrir prófið. Þar getið þið séð einkunnir úr hverjum prófhluta. Fljótlega kemur svo inn einkunn fyrir blogg, kennaraeinkunn og sjálfsmat (sem því miður gleymdist í dag en við framkvæmum í byrjun næstu viku) og þá er þriðja önnin formlega kláruð. Námsmat 10. bekkjar byggir áI önn
20%
II önn
20%
III önn
20%
Lokapróf
40%
Nemendum fannst prófið létt, a.m.k. léttara en þau áttu von á. Vonandi verða ekki margir fyrir vonbrigðum því að þetta var nokkuð strembið, enda námsefnið yfirgripsmikið. Ég er mjög sátt með niðurstöðuna og vona að þið séuð það líka.
Hér læt ég fylgja með meðaleinkunnir bekkjarins úr hverjum þætti og svo heildarinnar. Þetta er ekki hægt að sýna í Mentor, en eru mikilvægar upplýsingar fyrir ykkur.
Vægi Prófþáttur meðaleinkunn A 10% Stjörnufræði 8,36 B 10% Eðlisfræði 6,95 C 10% Efnafræði 8,09 D 10% Líffræði 7,59 E 60% Fjölval 70 % líffræði og 30 % aðrar áherslur 6,55 100% Heildareinkunn 7,0 Læt gott heita. Bestu kveðjur Gyða Björk
-
17. maí – 8. bekkur
Posted on maí 12th, 2010 No commentsÍ dag fengu nemendur verkefnablöð sem þarf að vinna og skila næsta föstudag. Á föstudag er síðasta kennslustundin á þessari önn og þá skila nemendur vinnumöppunum sínum með þessu verkefnablaði en það á að vera fremst í möppunni svo ég finni það strax. Ég mun svo setja það á réttan stað í möppuna.
-
12. maí – 5. bekkur
Posted on maí 12th, 2010 No commentsNemendur kláruðu að búa til skógarbækurnar sínar í dag en það var ekki mikið unnið af verkefnum. Sumir náðu þó að teikna og skrifa um fugl/fuglana í skóginum.
-
12. maí – 10. bekkur
Posted on maí 12th, 2010 No commentsLoksins, loksins komið að lokum í náttúrufræðikennslunni.
Einkunnir fyrir verkefni eru komnar inn á Mentor og 3.annareinkunn birtist mjög fljótlega sem og lokaprófið. Endilega að hafa samband ef eitthvað er óljóst eða þið eruð ekki sátt. Öllum velkomið að skoða prófúrlausnir.
Nú taka við danskir dagar og ferðalög – bara gaman.
Og svo kemur væmni kaflinn:
Það hefur verið frábært að kenna ykkur þetta skólaárið sem og hin fyrri. Þið eruð skemmtilegur nemendahópur með marga ólíka einstaklinga sem samt ná vel saman sem bekkur. Ég á eftir að sakna ykkar……sniff, sniff, en það er huggun harmi gegn að þið eigið eftir að láta ljós ykkar skína skært og þá get ég fylgst stolt með úr fjarlægð
. Gangi ykkur alltaf sem allra best,
ykkar Gyða Björk.
Og svo …….
-
12. maí – 9. bekkur
Posted on maí 12th, 2010 No commentsVið verðum í skóginum í dag.
- Tæmum hryggleysingja – gildrurnar okkar.
- Kíkjum á innihaldið – rifjum upp frá síðasta tíma – liðdýr, skordýr, áttfætlur, fullkomin myndbreyting, ófullkomin myndbreyting, meyfæðing o.s.frv.
- Skoðum í víðsjá og greinum og flokkum.
- Tengjum við vistfræði – fæðukeðjur og fæðuvefi, frumbjarga og ófrumbjarga lífverur.
- Kveikjum í eldstæði. Helga Teits mætir með brauðdeig og fyllingar, epli og sósur. Við bökum, skerum, grillum og borðum saman.
- Segjum sögur og förum í minnisleik.
Vonandi mæta allri vel búnir – gæti skúrað í dag.
Hittumst hress og kát,
Gyða Björk.
-
11. maí – 7. bekkur
Posted on maí 11th, 2010 No commentsVerkefnavinna þar sem áherslan er á beinagrind og vöðva. Hluti verkefnanna er hægt að nálgast hér.
-
11. maí – 10. bekkur.
Posted on maí 11th, 2010 No commentsJæja elskurnar mínar. Nú sitið þið sveitt við prófalestur – bæði danska og náttúrufræði á morgun.
Vildi bara senda ykkur baráttukveðjur ég veit að þið rúllið þessu upp. Prófið er uppbyggt eins og ég upplýsti á mánudaginn.
- 40% fullyrðingar og tengispurningar.
- 60% fjölvalsspurningar
Við fáum salinn kl 12.20 (þið farið í mat fyrir kl. 12) og svo sjáum við til hvað þið þurfið langan tíma. Ég geri ráð fyrir tveimur kennslustundum en ef það dugar ekki nýtum við okkur valtímann.
Muniði bara að borða vel, sofa vel, gera eitthvað skemmtilegt með lestrinum.
Ekkert stress…….bless, bless.
Gyða Björk
-
10. maí – 5. bekkur
Posted on maí 10th, 2010 No commentsNemendur héldu áfram að vinna í skógarbókina sína. Við fundum fullt af smádýrum í síðustu viku og nemendur leituðu upplýsinga um þau, teiknuðu og skráðu niður. Við notum vef námsgagnastofnunar um smádýrin á landi og smádýrin í vatninu.







