Náttúrufræði Flúðaskóla 5.-10. bekkur
RSS icon Email icon
  • 30. apríl – 8. bekkur.

    Posted on apríl 29th, 2010 hallas No comments

    Í dag var stöðvavinna og ýmsar stöðvar í boði. 

    • Nemendur teiknuðu upp og skráðu tilraun Francescos Redis en hann átti þátt í að afsanna kenningum um sjálfskviknum lífs.
    • Skoðuð vatnssýni í smásjá.
    • Skoðuð sýni frá gosstöðuvunum, þ.e. aska, leir og vatn úr   Markarfljóti með það í huga hvort  líf leyndist eða gæti leynst í sýnunum.
    • Vinnubókarvinna úr efninu, glósur o.fl.
    • Undibúningur undir blogg vikunnar.
    • Verkefni um áreiti og viðbragð.
    • Verkefni um ævilengd.

    Áherslur þessa vikuna;

    • Algengustu frumefni í lífverum eru kolefni, vetni, nitur og súrefni.
    • efnaskipti er öll efnahvörf sem fara fram í lífveru og eru nauðsynleg til að viðhalda lífi.  Næringarnám, melting, öndun og þveiti eru mikilvægir þættir efnaskipta og eiga sér stað í öllum lífverum.
    • Æviskeið er sá tími sem hver lífvera lifir.
    • Lífverur bregðast við áreiti, sem er breyting í umhverfi þeirra, með því að sýna eitthvað eitthvert viðbragð.
    • Æxlun er ferli þar sem lífverur eignast eitt eða fleiri afkvæmi.

    Í lok tímans var stutt upprifjun á efninu.   Minni á könnun næsta föstudag, þ.e. 7. maí og þá er m.a. efni þessarar viku til prófs.

    Leave a reply