Náttúrufræði Flúðaskóla 5.-10. bekkur
RSS icon Email icon
  • 15. apríl – 10. bekkur

    Posted on apríl 15th, 2010 gydabjork No comments

    Kíkjum á gosfréttir og að því loknu tekur við stöðvavinna. 

    Eftirfarandi í boði:

    1. Helstu orkumyndir – útskýrðu og nefndu dæmi.
    2. Samanburður celsíus- og kelvinkvarða – breytistuðlar
    3. Þáttagreining í tilraunum.
    4. Hugtakakort og glósur bragðbætt.
    5. Hvaða tilgangi gegnir einangrun?
    6. Framkvæmd tilraunar og skekkjugreining.
    7. Nýting jarðvarma.
    8. Lifandi vísindi – valin stutt grein og gerður úrdráttur – tengt viðfansefni dagsins.
    9. Varmi og hiti – hver er munurinn?
    10. Hvers vegna er meiri varmi í baðkari fullu af 40°C heitu vatni en í bolla sem inniheldur 70°C heitt kaffi? 
    11. Hvernig virkar kæliskápur?
    12. Eðlisvarmi.
    13. Þensla fastra efna og daglegt líf.
    14. Stálull og batterí – hvers vegna er það eldfimt samband?
    15. Hreyfingar  sameinda

    Sem sagt úrvalið er nóg – vinnið sjálfstætt eða tvö og tvö saman.  Klárið að minnsta kosti 8 stöðvar og skilið niðurstöðum úr tímanum til kennara í lokin.

    Gangi ykkur vel.

    Leave a reply