-
8. mars – 9. bekkur
Posted on mars 8th, 2010 No commentsÞjórsá – líffræði
Fyrirlestrartími í dag. Glærur um vistkerfi – sérstök áhersla á Þjórsárver.
Nokkrir frumframleiðendur – upplýsingar fengnar frá Flóru Íslands:

Grasvíðir eða smjörlauf (Salix herbacea) er minnstur af íslenzku víðitegundunum. Hann er jarðlægur, sjaldan meir en 10-20 sm á hæð með kringlóttum blöðum. Hann er algengur um allt land upp fyrir 1000 metra, en hittist líka hér og hvar á láglendi. Aðalheimkynni grasvíðisins eru í snjódældum til fjalla, en einnig vex hann víða í mólendi eða jafnvel á mýraþúfum

Krækilyng (Empetrum nigrum) er ein af algengustu jurtum landsins og vex í lyngmóum, í grýttum melum og jafnvel í deiglendi.

Klófífa eða brok (Eriophorum angustifolium) vex í votlendi, mýrum og flóum. Hún er mjög algeng um allt land frá láglendi upp í 700-800 m hæð. Hún þekkist frá hrafnafífu á 3-4 eða fleiri öxum. Síðsumars mynda blöð hennar rauða fláka í flóum hálendisins.
Leave a reply