Skrifað 9. September, 2009 af hallag
Í morgun fór allur skólinn í gönguferð uppá Högnastaðaás í tilefni af verkefninu Göngum í skólann. Fyrsti og annar bekkur eru algjörar fjallageitur og gengu eins og herforingjar þarna upp. Anna Ásmundsdóttir sagði okkur hvað fjöllin heita hér í kring og einnig frá nyknum sem býr í Vörðufellinu. Hann birtist á 100 ára fresti og sást seinast 17. júní 2000. Nú er bara að bíða eftir árinu 2100 þá getum við séð hann aftur….
Kveðja Halla og 1-2 bekkur
Skrifað 3. September, 2009 af hallag
1.bekkur fór í leikskólann á þriðjudaginn og tók upp kartöflur og rófur. Það urðu fagnaðarfundir hjá mörgum þegar þau hittu vini sína í leikskólanum.
Mikill atgangur að taka upp.
Leikskólaheimsóknirnar eru liður í að styrkja sambandið á milli skólastigana og gera skólaskiptin hjá börnunum sem best. 1.bekkur kom í fjölmargar heimsóknir seinasta skólaár og það er að skila sér mjög vel, sem sést best á því hvað þau eru örugg með sig í skólaumhverfinu
Útikennsluvikan hefur gengið mjög vel og hafa börnin í 1.0g 2.bekk tekið þátt í hinum ýmsu verkefnum hér og þar í umhverfi skólans.
Á morgun föstudag mega börnin taka með sér útidót.
Kveðja Halla og 1-2.bekkur
Skrifað 31. August, 2009 af hallag
Veðrið ætlar að leika við okkur í útikennslunni, það byrjar allavega vel. Við fórum út strax í byrjun dags og fórum í leiki eins og: Hlaupa í skarðið, 1,2,3,4,5 Dimmalimm, Jósep segir o.fl. Einnig prófuðum við öll að leiðast til að athuga hvort við næðum frá skólanum og allaleið að íþróttahúsinu, það tókst
Við bjuggum okkur til óróa úr blómavír og laufblöðum sem börnin týndu á leikvellinum okkar. Mjög flott hjá börnunum.
Börnin voru líka úti í íþróttum, svo þau koma frísk og endurnærð heim eftir mikla útivist
Kveðja Halla og 1-2. bekkur
Skrifað 26. August, 2009 af hallag
Þá er skólastarfið að komast á fullan skrið og börnunum gengur vel að koma sér inn í rútínuna.
Hér verður bloggað fyrir bæði fyrsta og annan bekk. Það er að komast í gang.
Kveðja Halla