Flestir í réttir
Flestir nemendanna fóru í réttir og var mikið kappsmál hérna í morgun hversu margar rollur þeir drógu. Það voru reyndar einhverjir örfáir sem fóru ekki, voru ýmist veikir eða jafnvel heima að baka pönnukökur. Svo voru reyndar sumir sem fóru meira að segja í tvennar réttir, jafnvel alveg austur að Höfn í Hornafirði. Já, það var mikið um að vera þessa helgina.
hehhe ég verð að leiðrétta það sem ég sagði hér í einni umræðunni um réttirnar. Það eru víst um 1000 rollur og lömb í Haukholtum ekki 300! Eins gott að enginn sá þetta
Vá, það eru margar rollur. Já, rétt skal vera rétt.