Frí á morgun, réttardaginn.

Ég vil bara minna fólk á að það er frí á morgun vegna rétta. Ég reikna með að sjá sem flesta í réttunum. Góða helgi.

4 Responses to “Frí á morgun, réttardaginn.”

  1. 1
    Marlín

    Árdís fór í morgun ríðandi á móti safninu og datt af baki. Hún dustaði af sér sandinn og sagði; „maður þarf að detta allavegana 20 sinnum af baki til að teljast góð hestakona. 3. af 20… þetta er allt að koma“ hhahahaha bara fyndið. Sjáumst hress í réttunum á morgun

  2. 2
    Anna Þórný

    Það er aldeilis krafturinn í henni Árdísi. Ég hef einu sinni dottið af baki, þá fór hesturinn sjálfur í kollhnís og ég náttúrlega með. Það var mjög „skemmtileg“ bylta. Ég vona að ég hitti sem flesta krakka í réttunum á morgun.

  3. 3
    Ragnheiður (Laufeyjar mamma)

    Laufey Helga var líka mjög dugleg og reið á móti safninu og stóð sig eins og hetja ;o) og auðvitað var líka riðið heim og gætt sér á góðri réttarsúpu ;o) Allir skemmtu sér mjög vel hér á bæ á réttardaginn ;o)
    Hlökkum til að heyra skemtilegar réttarsögur ;o)
    Kveðja úr Langholtskoti

  4. 4
    Marlín

    Það er greinilegt Ragnheiður, að við eigum flottar stelpur sem eru knapar framtíðarinnar. Árdís fór einmitt á móti safninu líka og svo heim í Haukholt með ca 300 rollur ásamt góðu liði. Svo var tengdamömmuréttarsúpa sem hlýjaði köldum kroppum þegar þau loksins komu heim um kl. 19


Want to Leave a Reply?