Posted in
Dagbókin on september 14th, 2009 by Anna Þórný —
2 Comments
Flestir nemendanna fóru í réttir og var mikið kappsmál hérna í morgun hversu margar rollur þeir drógu. Það voru reyndar einhverjir örfáir sem fóru ekki, voru ýmist veikir eða jafnvel heima að baka pönnukökur. Svo voru reyndar sumir sem fóru meira að segja í tvennar réttir, jafnvel alveg austur að Höfn í Hornafirði. Já, það var mikið um að vera þessa helgina.
Efnisorð:

Posted in
Heimanám on september 10th, 2009 by Anna Þórný —
3 Comments
Heimanám 10. – 15. sept.
2 verkefnablöð í plastmöppu (leikur með mömmu eða pabba)
Viltu reyna, bls. 7 og 8
Lestur í lestrarbók
Það bar svolítið á því að nemendur voru ekki að klára blaðsíðurnar í síðustu viku, það átti sérstaklega við um bls. 2. Látið nemendur endilega vinna heimavinnuna samviskusamlega eins og þau flest gera. Fylgist með að þau dragi rétt til stafs, að þau snúa stöfunum rétt og að þau geri allt sem á að gera á blaðsíðunum. Og þegar þau eiga að lita hvetjið þau þá endilega til að lita ekki útfyrir.
Kveðja, Anna Þórný
Efnisorð:

Posted in
Dagbókin on september 10th, 2009 by Anna Þórný —
4 Comments
Ég vil bara minna fólk á að það er frí á morgun vegna rétta. Ég reikna með að sjá sem flesta í réttunum. Góða helgi.
Efnisorð:

Posted in
Dagbókin on september 9th, 2009 by Anna Þórný —
5 Comments
Gangan okkar í morgun gekk rosalega vel. Við gengum uppá Högnastaðaás og þar fræddi leiðsögumaðurinn Anna Ásmundsdóttir okkur um heiti allra þeirra fjalla sem sáust frá vatnstankinum. Þar glitti meira að segja í Esjuna. Við vorum líklega stödd þar klukkan 09:09. Frábær ferð og góð byrjun á yndislegum degi.
Efnisorð:

Posted in
Dagbókin on september 8th, 2009 by Anna Þórný —
Be the first to comment!
Eins og Guðrún Pétursdóttir er búin að skrá á heimasíðu skólans er verkefnið Göngum í skólann að fara af stað. Þar sem erfitt er að koma því við að nemendur gangi í skólann hér í sveitinni þá ætlum við að fara í göngu frá skólanum á morgun, miðvikudag, kl. 8:45. Því eru foreldrar beðnir um að sjá til þess að nemendur komi í hentugum skóm og fatnaði. Þar sem þetta verkefni stendur yfir í heilan mánuð þá er ekki ólíklegt að við förum í fleiri stuttar gönguferðir innan þess tíma.
Kveðja, Anna Þórný
Efnisorð:

Posted in
Heimanám on september 6th, 2009 by Anna Þórný —
1 Comment so far
3. – 8. september:
- Verkefnablað í reikningsbókinni.
- Bls. 1 - 3 í Viltu reyna
Efnisorð:

Posted in
Dagbókin on september 6th, 2009 by Anna Þórný —
Be the first to comment!
Þá er ég búin að vinna heilmikið í síðunni. Búin að skrifa aðeins um okkur í 3. bekk og örlítið um námið okkar.
Auk þess er ég búin að setja inn linka með ýmsum kennsluleikjum og öðrum spennandi síðum. Hugmyndin er sú að þessi síða verði spennandi fyrir börnin ykkar. Þ.e. að þau hafi sjálf áhuga á að fara inná síðuna og skoða. Ef þið vitið um áhugavert efni eða linka, látið mig þá endilega vita. Hvetjið börnin ykkar til að kíkja á síðuna.
Kveðja, Anna Þórný
Efnisorð:

Posted in
Dagbókin on september 4th, 2009 by Anna Þórný —
1 Comment so far
Þá er þessi vika að enda komin. Hún hefur gengið afskaplega vel. Við höfum verið mikið úti í skógi og í dag unnu þau flest sem verkfræðingar í sandkassanum, mjög gaman. Þau sleppa að sjálfsögðu ekki við almennt nám innandyra og hafa unnið sérstaklega mikið í stærðfræði og samfélagsfræði. Dugnaður í þeim.
Nemendurnir fengu heimanámið heim í gær og vona ég að sem flestir foreldrar hafi kíkt á það. Það fylgir lítill miði með sem segir til um hver og hvernig heimaverkefnin eru. Ég stefni svo á að þær upplýsingar verði líka hægt að nálgast á Mentor ef þessi litli miði týnist. Aðeins að byrja að venja okkur á að nota Mentor. Ég veit ekki hvort þið séuð með lykilorð inná hann, en ef ekki, þá verðum við að finna út úr því.
Hafið það sem allra best um helgina. Kveðja, Anna Þórný
Efnisorð:

Posted in
Dagbókin on september 1st, 2009 by Anna Þórný —
1 Comment so far
Takk fyrir kveðjurnar. Þetta fer greinilega vel af stað hjá okkur. Veturinn í heild sinni, hjá börnunum ykkar, fer líka mjög vel af stað. Þau eru strax orðin mun viðráðanlegri og tilbúin að leysa vandamál ef/þegar þau koma upp.
Nú í vikunni ætla ég að senda fyrsta heimanámið heim. Það ber svolítið á því að nemendur séu ennþá að skrifa tölustafina vitlaust, byrja þá annaðhvort niðri eða að þeir séu ennþá að spegla. Þeir þurfa að komast út úr þessu og það gerist með aukinni æfingu. Fyrsta heimaverkefnið verður því í stærðfræði og þið haldið áfram að láta börnin lesa heima. Æfingin skapar meistarann.
Kveðja, Anna Þórný
Efnisorð:

Posted in
Dagbókin on ágúst 26th, 2009 by Anna Þórný —
4 Comments
Komiði sæl!
Allt vill lagið hafa. Nú er bloggsíðan að komast í gagnið eins og svo margt annað sem huga þarf að í upphafi nýs skólaárs.
Skólaárið hefur byrjað mjög vel og eru nemendurnir vel stefndir til að halda áfram að læra. Fyrsta neikvæða uppákoman kom reyndar í dag, þar sem einhverjir drengir fóru að kasta steinum í hvern annan sem endaði með gráti. Við þyrftum að gera börnum okkar grein fyrir því að þau eru alveg að vaxa upp úr því að kasta steinum í hvert annað þó að það sláist upp á vinskapinn.
Undanfarna daga hafa nokkrir drengir komið með fótboltamyndir í skólann. Yfirmenn skólans hafa beðið okkur um að sjá til þess að börnin skilji þessar myndir eftir heima. Það kom eitthvað uppá í dag sem varð til þess að þessi ákvörðun var tekin. Ég vona að þið virðið það.
Ég dreyfði lestrarbókum til allflestra nemenda í dag og þeir lásu fyrir mig, gaman að hlusta á þá. Hefjið nú endilega störf sem þjálfarar í lestri og látið börnin ykkar lesa á hverjum virkum degi, a.m.k. 10 mín. á dag.
Kveðja, Anna Þórný
Efnisorð:
